fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Hér er spurt um skattstefnu Samfylkingarinnar og Samfylkingin lagði ríka áherslu á að þjóðin fengi eðlilegan arð af auðlindum sínum. Veiðigjöldum var vissulega breytt. Þær breytingar voru hins vegar mjög hóflegar og skilgreindar í skrefum. Ég hefði alveg séð fyrir mér, og það er augljóst, eins og þróunin hefur verið eftir að þessi lög voru sett, að hrakspárnar sem haldið var á lofti gagnvart þeim stóðust engan veginn og það má velta fyrir sér hvort það hefði ekki verið rétt að samþykkja lögin nokkurn veginn óbreytt og í raun má velta fyrir sér hvort veiðigjöldin séu eðlilega há. Við sjáum það t.d. þegar verið er að bera saman verð á nákvæmlega sama fiski í Færeyjum og á Íslandi, landaðri loðnu. Það er þriðjungsverð sem reiknast á þessa loðnu hér á landi og það hefur auðvitað áhrif á þetta.
Ég er talsmaður þess að deila byrðunum á sanngjarnan hátt og standa með kaupmætti fólks, kjörum og jöfnuði. Ég nefndi það í ræðu minni að þetta þyrfti að ræða, m.a. í ljósi áskorana til framtíðar í opinberum fjármálum og er alltaf tilbúinn að ræða það. Ef bornar eru saman tekjubreytingar í fjárlögum þessa fjárlagafrumvarps og síðasta og fjárlagafrumvörpum síðustu ríkisstjórna, þá er ekki mjög mikill munur á. Tekjuskattur fyrirtækja var t.d. hækkaður til tveggja ára í tíð fyrri ríkisstjórnar. Hann var lækkaður í tíð þessarar ríkisstjórnar. Telur hv. þingmaður að það hafi verið mistök? En það er stundum talað eins og skattar séu almennt að hækka mikið í tíð þessarar ríkisstjórnar. Það er erfitt að færa rök fyrir því (Forseti hringir.) þegar borið er saman við fjárlög undanfarin 7–10 ár og ég skora á þingmenn að gera það.