158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[12:04]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vek athygli á því að hv. þingmaður samviskusamlega notaði ræðu sína eða svar til að gera eitthvað allt annað en að svara spurningunum. Ég spurði í fyrsta lagi: Af hverju lofaði Samfylkingin fyrir síðustu kosningar að hækka ekki skatta? Af hverju gerði hún það? Skattar hafa hækkað um 60 milljarða, þetta eru ekki bara veiðigjöld. Við getum rætt þau og afleiðingar þeirra og hvernig gagnrýni á þau hefur elst og hún hefur elst prýðilega. En við skulum sleppa því núna. Ég er hins vegar alveg til í að ræða það við hv. þingmann hvenær sem er. Ég bara spyr: Af hverju lofaði Samfylkingin að hækka ekki skatta? Það var alveg skýrt, talað um venjulegt fólk, sérstaklega í kosningasjónvarpi. Núverandi hæstv. forsætisráðherra sagði fyrir í þessum ræðustól á síðasta kjörtímabili: Þegar ríkisstjórnir gera ekki nóg til að halda aftur af verðbólgu þá þarf Seðlabankinn að gera meira. Ég spurði hv. þingmann: Hefur ríkisstjórnin ekki gert nóg eða var þetta tóm þvæla hjá núverandi hæstv. forsætisráðherra? Ég spurði að því.

Svo spurði ég líka út í fjármálaráð, af því að hv. þingmaður talaði um stöðugleikaregluna. Fjármálaráðherra sagði að aðgerðir núverandi ríkisstjórnar væru forsendubreyting á stöðugleikareglunni og það þyrfti að endurskoða hana. Ég spurði hv. þingmann hvað honum fyndist um það. Það er ekkert svar. Reyndar er þannig að ég bætti við og ég er ekkert mjög bjartsýnn á að hv. þingmaður muni svara neinum af þessum spurningum. En ef hann vill ekki ræða þær þá vill hann kannski ræða það hvort honum finnist einhver ástæða til þess að hafa fjármálaráð þegar þú ert með ríkisstjórn sem fer ekkert eftir því sem ráðið segir.