fjárlög 2027.
Forseti. Ég vil þakka þingmanninum andsvar og ítreka að það var sannarlega stefna Samfylkingarinnar að hækka veiðigjöld og þau hefðu mátt hækka meira að mínu mati. Það var líka talað um að verja venjulegt fólk þegar skattar væru annars vegar. Það sést m.a. á því að stefna fyrri ríkisstjórnar um að taka upp kílómetragjald hefur verið útfærð þannig að við erum núna að hækka það minna en gert var ráð fyrir í áætlunum síðustu ríkisstjórnar. Það sést á því að við erum núna ekki að hækka skatta á fólk heldur banka í ljósi þess að þegar bankaskatturinn var afnuminn sýna greiningar … (GÞÞ: … hækka skatta á fólk? )— Þegar bankaskatturinn var afnuminn sýna greiningar að sú aflétting var ekki látin renna til neytenda af hálfu bankanna. Þannig hefur þessi ríkisstjórn reynt að deila byrðunum á sanngjarnan hátt. Ég held að þróun síðustu ára sýni betur en mjög margt annað að ytri áföll hafa mjög mikil áhrif á íslenskt efnahagslíf, bæði verðbólgu og vexti. Krónan er gríðarlega lítill gjaldmiðill og hefur virkað sem magnari frekar en dempari á þessar sveiflur. Síðasta ríkisstjórn var kosin frá vegna þess hversu illa henni gekk að ná niður verðbólgu eftir þau áföll og tókst það verkefni þannig að verðbólgan var í 10% og stýrivextir líka, því sem næst. Verkefni þessarar ríkisstjórnar er að taka til eftir þetta og hallalaus fjárlög eru sannarlega hluti af því.