fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu. En ef við horfum á stóru myndina og hvernig efnahagsmálin hafa þróast hér í höndum núverandi ríkisstjórnar þá getum við séð að þegar ríkisstjórnin tók við árið 2024 voru vextir byrjaði að lækka; vaxtalækkunarferlið var hafið. Hins vegar hefur þróunin orðið slík að vextir hafa hækkað eftir að ríkisstjórnin tók við. Vissulega lækkuðu þeir eitthvað aðeins á tímabili en þeir eru farnir að hækka aftur. Við verðum því líka að tala um hlutina eins og þeir eru. Það er alveg ljóst að ríkisstjórnin er ekki að ná tökum á efnahagsmálunum. Og nú er ég ekki að standa hér og segja að það sé einfalt verkefni, alls ekki. Við þurfum að gæta sanngirni þegar kemur að því. En eins og hv. þingmaður kom inn á þá skiptir máli að við séum að deila byrðunum á sanngjarnan hátt og að það sé stefna ríkisstjórnarinnar. Á sama tíma og ég segi það þá sjáum við opinber gjöld hækka um 5,2%, sem er tvöfalt á við verðbólgumarkmið Seðlabankans. Kílómetragjaldið er að hækka og hv. stjórnarþingmönnum er tíðrætt um kílómetragjaldið og áform síðustu ríkisstjórnar. En síðasta ríkisstjórn brást við þeim aðstæðum sem komu upp hverju sinni og var tilbúin til þess að beygja út af ef þess þyrfti. Ef staðan væri með þeim hætti að hér væri verðbólga að aukast og vextir að hækka þá værum við tilbúin til að endurskoða hlutina. En talandi um það að deila byrðunum og að þetta hafi ekki áhrif á venjulegt fólk, við erum að sjá að barnabætur standa í stað að krónutölu og rýrna að raunvirði. Þetta er yfirleitt það fólk í landinu sem þarf á stuðningi að halda, sem er að koma sér þaki yfir höfuðið, er að koma börnunum upp. Vaxtabótakerfið er skert og það verður dýrara fyrir fólk að byggja og endurbæta húsnæði vegna minni endurgreiðslu virðisaukaskatts. (Forseti hringir.) Það er hærri mánaðarlegur kostnaður fyrir fjölskyldur sem nú eru að takast á við háa vexti, allt of háa vexti, dýrt húsnæði og hækkandi verð.
Mig langar að spyrja (Forseti hringir.) hv. þingmann: Hvað af þessum atriðum er ekki skattahækkun á venjulegt fólk og með hvaða hætti (Forseti hringir.) er verið að deila byrðunum á sanngjarnan hátt?