fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka þingmanninum fyrir ágætt andsvar og fínar spurningar. Þetta er nákvæmlega umræðan sem mér finnst eðlilegt að við tökum í tengslum við fjárlögin. Ég býð þingmanninn sérstaklega velkomna í fjárlaganefnd og hlakka til að vinna með henni á þessu hausti.
Verðbólgan fór hæst í 10% í byrjun árs 2023 og stýrivextir fóru í 9,25% um hálfu ári síðar. Þeir voru rétt farnir að lækka sex vikum fyrir kosningar í 9% og voru sem sagt í 9% þegar þessi ríkisstjórn tók við. Það voru vonbrigði að verðbólgan færi upp, sannarlega, en það verður ekki annað sagt en að núverandi ríkisstjórn hafi gert sitt í gegnum aðhaldssöm fjárlög, önnur fjárlögin núna. Og eins og ég dró fram þá er aðhaldið í raun, umfram stöðugleikareglu, um 40 milljarðar í nýframlögðu frumvarpi.
Þingmaðurinn vekur máls á því að það er verið að ganga út frá því að krónutölugjöld haldi verðgildi sínu, þ.e. 5,2% miðast ekki við það að þetta hækki að raunvirði heldur haldi verðgildi sínu. Það kæmi mér ekki á óvart að nákvæmlega þetta kæmi til tals í samtölum við aðila vinnumarkaðarins og við erum þegar farin að heyra tóna í því efni. Ég held að við eigum mjög mikið undir því að ná góðri samstöðu um hvernig við stígum næstu skref til að hemja verðbólgu á Íslandi. Við erum að gera okkar með fjárlögum en samtal og samkomulag við aðila vinnumarkaðarins er þar líka mikilvægur þáttur og þar kemur að Framsóknarflokknum, sem er í meiri hluta í Reykjavík. Nýr meiri hluti í Reykjavík hefur boðað stórfelldar gjaldskrárhækkanir (Forseti hringir.) á þessu hausti. Hver er afstaða þingmannsins til þess? Eru 5,2% þar þak (Forseti hringir.) eða á það að vera neðar? Mun þingmaðurinn mótmæla opinberlega ef meiri hlutinn í Reykjavík gengur lengra, (Forseti hringir.) eins og hótað hefur verið?