158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[12:14]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin en einnig spurningarnar. Við tökum eflaust á þeim á eftir þegar ég verð með mína ræðu. En nú er ég í andsvari og er að spyrja hv. þingmann. Mig langaði aðeins að koma inn á það að við getum endalaust verið að ræða hér söguna og litið aftur í tímann en við þurfum að horfa á staðreyndir út frá deginum í dag: Hver þróunin verður á næsta ári og hver stefna ríkisstjórnarinnar er þegar kemur að efnahagsmálum og trúverðugleika. Þegar fjárlög fyrir þetta ár voru gerð og samþykkt á síðasta ári þá voru alls konar viðvaranir uppi varðandi gjaldskrárhækkanir ríkisstjórnarinnar og hvaða áhrif það myndi hafa á verðbólgu og vexti hér á landi. Þetta var hunsað, algerlega, og farið í þessar hækkanir með galopin augun. Því miður var raunin sú að allar þessar áhyggjuraddir höfðu rétt fyrir sér. Við höfum ekki náð tökum á verðbólgu og vöxtum og 85% landsmanna treysta ekki ríkisstjórninni í efnahagsmálum. Þetta eru alveg rauð ljós. Við Framsóknarmenn erum svo sannarlega tilbúin að hjálpast að við þetta verkefni og leggja okkar af mörkum. Þegar kemur að gjaldskrárhækkunum, af því að hv. þingmaður fór aðeins yfir það, þá höfum við m.a. lagt fram tillögu um sameiginlega gjaldskrárstefnu ríkis og sveitarfélaga einmitt til þess að það sé gagnsæi, það sé fyrirsjáanleiki þannig að fyrirtækin í landinu og fólkið í landinu viti svona nokkurn veginn hvernig stefnan er. Hérna er ekki verið að tala um einhverja samræmingu á gjaldskrárhækkunum eða eitthvað svoleiðis, heldur bara um gagnsæi þannig að það komi ekki hér himinháar hækkanir, 5,2%, eins og er verið að gera hér hjá ríkisstjórninni. Þannig að enn og aftur: Jú, við erum tilbúin til að leggja okkar á vogarskálarnar og ég hlakka sömuleiðis til samstarfsins í fjárlaganefnd á komandi vetri.