fjárlög 2027.
Forseti. Ég vil byrja á því að þakka þingmanninum fyrir sitt síðara andsvar og fyllist bara gleði og tilhlökkun gagnvart því að vinna með þingmanninum í að ná sveitarfélögunum að borðinu og reyna að búa þannig um hnúta að við getum öll stigið stolt frá því verki að klára umfjöllun um fjárlög inni í fjárlaganefnd. Til þess að leggja grunn að hverju? Jú, lækkun verðbólgu og þar með vaxta, þó að við vitum að krónuumhverfið sé flókið og erfitt. Við eigum, eins og við sjáum á verðbólguvæntingunum, í glímu við það sem í hagfræðinni hefur verið kallað pesos-vandamálið, þ.e. þegar Mexíkó var kannski með allar tölur fínar þá var það samt undirliggjandi trú eða ótti í samfélaginu að eins og áður myndu smá áföll eða einhverjar breytingar leiða til þess að það yrði meiri verðbólga í gjaldmiðli Mexíkó heldur en jafnvel efnahagstölurnar segðu til um. Það er kannski vandinn sem við vorum að ræða í sumar varðandi íslensku krónuna og sögu hennar, að við þurfum kannski að ganga lengra bæði í aðhaldi í ríkisfjármálum en ekki síður í stýrivöxtum Seðlabankans en verðbólgutölurnar gefa tilefni til. Við erum kannski með um eða yfir 3% raunstýrivexti til að hemja verðbólgu á meðan önnur lönd eru með stýrivexti nálægt sinni verðbólgu eða jafnvel lægri til að ná sama aðhaldi. Þannig að þetta er umhverfi sem við þurfum að halda áfram að ræða þó að við höfum ákveðið að taka ekki upp þráðinn í viðræðunum við ESB. Við þurfum að vera raunsæ þegar við erum að ræða krónuumhverfið.