158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[12:18]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Við ræðum hér nýframkomið fjárlagafrumvarp, eða eigum við frekar að segja fjárlagafrumvarpið, það langþráða sem stjórnarliðar hafa verið að bíða eftir alveg frá því að þessi stjórn tók við völdum, þ.e. fjárlagafrumvarpið þar sem menn bera vonir til þess að í fyrsta sinn í fjöldamörg ár verði fjárlög hallalaus. Þetta er auðvitað gott markmið og sjálfsagt og eitthvað sem við myndum öll vilja og ætla að stefna að. Heildartekjur í þessu fjárlagafrumvarpi fara úr 1.592 milljörðum í 1.708 milljarða, þ.e. hækkun tekna er tæpir 116 milljarðar. Heildarútgjöld ríkisins fyrir árið 2027 eru áætluð 1.621 milljarður á þessu ári en áætlað er að fara í rúma 1.703 milljarða á næsta ári, þ.e. hækkun um tæplega 83 milljarða.

Hvað þýðir þetta í raun og veru, frú forseti? Í raun og veru þýðir þetta að lykilatriði í þessum fjárlögum, frú forseti, er tekjuaukningin, þ.e. þessum útgjöldum, sem sífellt eru að vaxa, á síðasta ári og þessu ári mjög mikið, og áframhaldandi útgjaldaþenslu á næsta ári upp á 83 milljarða, er mætt með auknum tekjum. Hvað þýðir það á mannamáli, frú forseti? Það þýðir einfaldlega að ríkisstjórnin er að hækka skatta. Það er bara svo einfalt. Þetta er í raun sáraeinfalt. Ríkisstjórnin virðist ekki geta tekið á útgjöldunum og mætir sífellt auknum útgjöldum með aukinni skattheimtu. Þetta er niðurstaðan í þessu fjárlagafrumvarpi í örstuttu máli, frú forseti.

Hvaða skattar eru þetta, frú forseti? Menn hafa svo sem talað um þá hér áður. Ég ætla aðeins kannski að renna yfir það. Það eru t.d. gjaldahækkanir ríkissjóðs, sem er náttúrlega sérstakur kapítuli út af fyrir sig, að ríkisstjórnin skyldi ganga fram með því fordæmi að hækka öll gjöld um rúm 5% á sama tíma og stefnt er að því að halda verðbólgunni í 2,5%. Þetta er auðvitað alveg sérstakt, frú forseti, og erfitt að afsaka þetta eða reyna að breiða yfir þetta á nokkurn hátt. Þetta er verðbólguhvetjandi.

Þeir ætla að hækka bankaskatt. Á hverjum lendir það? Það lendir á skuldurum og skuldugum heimilum. Þeir ætla að hækka gjaldtöku á náttúruperlur um 5 milljarða. Það gæti komið niður á ferðaþjónustu sem er öflugur atvinnuvegur, sérstaklega úti á landi. Menn höggva í sama knérunn sí og æ.

Ráðgerð er hækkun kílómetragjalds um tæp 16%. Þetta er nýr skattur, kom á hérna með miklum hávaða fyrir síðustu áramót og hefur gengið mjög brösuglega, frú forseti, að koma því kerfi sem sér um innheimtu á þessum skatti í lag og menn segja margar draugasögur af viðskiptum sínum við kerfið þar sem menn eru að reyna að fá leiðréttingar og endurgreiðslur, sem gengur alveg hreint hroðalega fyrir hinn almenna borgara, svo hroðalega að margir hverjir hafa algjörlega gefist upp á að reyna að fá einhvers konar leiðréttingu á þessu. Þetta á að hækka um 16%, frú forseti. Það þarf ekki að taka fram að það er auðvitað langt umfram verðbólgu í fyrsta lagi og langt umfram öll verðbólguviðmið og lendir auðvitað á sérstaklega á landsbyggðinni. Flutningskostnaður eykst og vörur munu þá hækka, sérstaklega þegar fjær dregur höfuðborginni.

Það á að hækka álögur á ferðaþjónustuna með því að hækka virðisaukaskatt á baðlón og gufuböð. Mun þetta hafa áhrif á ferðaþjónustuna? Það gæti gert það. Við erum minnug þess þegar skattar voru hækkaðir á skemmtiferðaskip sem olli bara miklum samdrætti á þeim vettvangi.

Það á að lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts af endurbótum á húsnæði. Það mun draga úr vilja fólks til að endurnýja sitt húsnæði og halda því við.

Eitt sem kannski er ekki búið að fjalla mikið um er tekjuskatturinn. Nú er persónuafsláttur og skattþrepin öll þrjú að hækka í samræmi við verðbólgu árlega en að því viðbættu hefur verið svokallað framleiðniviðmið sem er kannski skiljanlegt að tala um. En ofan á þessa hækkun hefur verið bætt 1% í mörg ár, 1% þar sem framleiðni í landinu hefur verið að aukast, en þessi ríkisstjórn hefur ákveðið að fella það niður. Það ber auðvitað lítið á þessu en þetta er auðvitað ekkert nema, frú forseti, skattahækkun. Þetta er skattahækkun vegna þess að þessi þrjú skattþrep munu ekki hækka um þetta 1% sem hefur verið í mörg ár og persónuafslátturinn ekki heldur. Þetta mun auðvitað valda aukinni skattbyrði á allan almenning, alla þá sem borga skatta. Þetta mun hækka skatta. Þetta atriði fer svolítið undir radar.

Svo eru ýmsar aðrar skattbreytingar sem ég ætla kannski ekki að fara nánar í hér tímans vegna og ég ætlaði nú að eyða kannski enn þá meiri tíma í að fara yfir aðhaldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar, sem ég hef nú verið að deila hér á, síðast í andsvörum við hæstv. fjármálaráðherra, en tímans vegna get ég ekki farið yfir það. En þessi 5 milljarða kr. afgangur sem er stefnt að er auðvitað algjörlega innan allra skekkjumarka og sýnir að það er engin alvara á bak við þetta fjárlagafrumvarp, frú forseti. Þessi afkomubati er sóttur með hærri sköttum. Það er ekki tekið á þeim útgjaldaflokkum sem hafa sogað til sín ógrynni fjár undanfarin ár. Vil ég nefna þar hælisleitendamál, loftslagsmál og útþenslu báknsins sem er alveg sérkapítuli. Það er ekkert tekið á því. 1% fækkun ríkisstarfsmanna, sem er ekki einu sinni í hendi, á þessu ári á að koma til sparnaðar á næsta ári.

Ríkisstjórnin boðar hækkanir á öllum þjónustugjöldum. Þær hækkanir munu hafa verðlagsáhrif, frú forseti. Þess er skemmst að minnast að Seðlabankinn rökstuddi hækkun stýrivaxta fyrir skemmstu með vísan til verðlagsáhrifa vegna hvers kyns gjaldahækkana ríkisins. Þessar hækkanir leiða til vaxtahækkana, frú forseti. Með öðrum orðum: Íbúðarkaupendur eru að greiða hærri vexti af lánum sínum vegna stefnu ríkisstjórnarinnar í þessum efnum.

Þá er ótalin stærsta ástæðan fyrir verðbólgu og háum vöxtum um þessar mundir. Það er stefna ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum þar sem hún hefur í sýnd og reynd gefist upp á að hemja verðbólguna, frú forseti. Verðbólgan og hávextirnir eru í boði ríkisstjórnarinnar. Nú er svo komið að t.d. að bætur Tryggingastofnunar eru að mörgu leyti tengdar við launavísitölu þvert á ráðleggingar hagfræðinga sem bent hafa á að aðgerðir af þessu tagi geri ríkisfjármálin að umtalsverðu leyti ósjálfbær. Unga fólkið, frú forseti, sem er að kaupa sér fasteignir um þessar mundir á því ekki von á góðu frá þessari ríkisstjórn.