158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[12:30]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir hans andsvar. Hann fullyrðir að þetta sé aðhaldssamasta fjárlagafrumvarp, ég held hann hafi sagt í áratugi. Nú þekki ég það að sjálfsögðu ekki kannski nægilega vel hvort það megi fullyrða svo og taka svo djúpt í árinni eins og hæstv. ráðherra er að gera. En varðandi þetta meinta aðhald sem hæstv. ráðherra er að spyrja um ítrekað, þá spyr ég á móti: Af hverju fóru fjárlög þessa árs svona mikið fram úr sér eins og raun ber vitni? Þar munar einhverjum — ég man nú ekki töluna en það er eitthvað yfir 30 milljarðar sem voru aukin útgjöld. Er það dæmi um aðhaldssemi þessarar ríkisstjórnar á yfirstandandi ári? Hverju má þá búast við á næsta ári?

Ég ætlaði í minni ræðu hér áðan að fjalla örlítið um aðhaldið frekar, og reyndar miklu meira, en tíu mínútur eru nú ekki langur tími þegar maður byrjar hérna uppi í pontunni. En ég ætlaði t.d. að tala um fækkun ríkisstarfsmanna, sem mér er hugleikin. Ekki það að ég vilji segja upp gífurlegum fjölda ríkisstarfsmanna, ég vil bara benda hæstv. ráðherra t.d. á aðferðirnar sem gætu dugað og hafa stundum, sumar þeirra alla vega, verið reyndar áður; t.d. eins og að setja á þá reglu að fyrir hverja tvo ríkisstarfsmenn sem hætta — því það er mjög mikill fjöldi ríkisstarfsmanna af þessum tæplega 30.000 sem hætta á hverju ári vegna aldurs eða annarra ástæðna. Það má auðveldlega spara þar með því að t.d. að ráða bara einn í staðinn fyrir tvo. Það má setja ráðningarbann á ákveðnar stofnanir eða ákveðna málaflokka þar sem menn telja kannski ekki þörf á að fjölga ríkisstarfsmönnum meira. Það má leggja upp t.d. rökstuðning fyrir hverri nýrri ráðningu sem ríkið ræðst í.