fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu. Ég vildi spyrja hann út í nokkra þætti sem hafa komið fram. Maður getur stundum ruglast og ekki farið rétt með, en hv. þingmaður sagði að það væri mikilvægt að greiða niður skuldir. Nú liggur alveg fyrir að það er ekki verið að greiða niður skuldir, þvert á móti er lánsfjárjöfnuður mjög neikvæður. Við þekkjum það náttúrlega líka varðandi framkvæmd fjárlaga þessa árs að þar hefur skuldsetning aukist mjög, vegna þess að það er ekki hægt að líta á fjárlögin í plús og mínus heldur þurfa menn auðvitað að líta á lánsfjárjöfnuðinn. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann hafi eitthvað mismælt sig hérna áðan. Sömuleiðis vildi ég spyrja hv. þingmann, af því að hann svaraði því ekki áðan, af hverju stjórnarflokkarnir lofuðu fyrir síðustu kosningar að hækka ekki skatta, því að það er augljóst að það er búið að hækka skatta um einhverja 60 milljarða og auðvitað vissu flokkarnir að hverju þeir gengu þegar þeir gengu til kosninga. Einnig vil ég spyrja hann, af því að ég hef vakið athygli á því að núverandi forsætisráðherra sagði það á sínum tíma í stjórnarandstöðu að þegar ríkisstjórnin gerði ekki nóg þá vildi Seðlabankinn gera meira í baráttunni gegn verðbólgu, hvort hann telji að forsætisráðherra hafi haft rangt fyrir sér þegar hún sagði það á síðasta kjörtímabili eða hvort það sé þannig að ríkisstjórnin sé ekki að gera nóg. En svo kannski að endingu, af því að hv. þingmaður hefur verið mjög ötull talsmaður landsbyggðarinnar, að það kom hér fram að þær skattahækkanir sem eru núna að koma fram munu koma mjög hart niður á bæði almenningi og fyrirtækjum á landsbyggðinni. Er það eitthvað sem veldur hv. þingmönnum áhyggjum?