fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Það er ekki svo gott, þó að hv. þingmenn hafi völd, að þeir ráði verðbólguvæntingum. Fjármálaráð vakti athygli á því, og það var ekkert gert með það af meiri hluta hv. fjárlaganefndar, að það væri verið að auka skuldir verulega sem hefði neikvæð áhrif á verðbólguvæntingar. Það er bara staðreynd. Það er alveg ljóst að miðað við afkomu ársins var hallinn miklu meira en tvöfalt meiri, en sömuleiðis munu skuldir aukast mjög mikið. Meiri hluti fjárlaganefndar fjallaði bara ekkert um þetta, tók ekkert á þessu. Þetta fer ekkert frá okkur.
Hv. þingmaður svaraði engu um þessi ummæli núverandi forsætisráðherra og hefur augljóslega ekki áhyggjur af landsbyggðinni, ég skil það þannig, þegar kemur að þessari skattlagningu. Ég myndi nú ætla að það að skerða samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar muni hafa sérstaklega vond áhrif á kjördæmi hv. þingmanns sem er að berjast við það að ná inn ferðamönnum og hefur gert margt mjög gott þar og mikilvægt að það gangi enn betur. En þegar kemur að því að stefna flokksins sé að skattleggja ekki fátækt þá hefur orðið breyting á t.d. varðandi sjúklingagjöld í tíð þessarar ríkisstjórnar. Það var markmið að lækka kostnaðarhlutdeild sjúklinga þannig að það væri svona nær því sem gerist á Norðurlöndunum og það hefur verið unnið að því síðustu tíu árin. En þessu hefur verið snúið við núna. Við Sjálfstæðismenn stóðum fyrir því að koma á þaki á kostnað fyrir hvern sjúkling en það er verið að setja núna á gjöld fyrir utan það fyrirkomulag. Er þetta ekki eitthvað sem veldur Flokki fólksins áhyggjum (Forseti hringir.) þegar kemur að svona gjaldtöku, því að oftar en ekki þannig að það fólk sem þarf á þessari þjónustu að halda er ekki sterkt fjárhagslega?