fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrir andsvarið. Það er alveg rétt, það er ekki okkar óskaleið að fara að hækka notendagjöld. Ég tek alveg undir með hv. þingmanni um áhyggjur hvað það varðar. Það verður að stilla þessu í hóf og ég treysti hæstv. heilbrigðisráðherra t.d. að útfæra þetta með þeim hætti að þetta gangi vel upp. Varðandi landsbyggðina og skattlagninguna á ferðaþjónustuna þá eru það einmitt þessir þættir sem þar voru nefndir. Það vill svo vel til að í gær var ég á fundi með Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra þar sem var verið að ræða þessi mál. Fólk hafði áhyggjur af skattlagningu á baðlónin og þá einkum minni baðlónin. Ég held að það eigi einnig við um minni rekstur á landsbyggðinni alveg burt séð frá baðlónum, sem hafa verið að skila góðum hagnaði, gott ef það voru ekki rúmir 8 milljarðar á árinu 2023. Stóru baðlónin eru í góðum rekstri og geta eflaust ráðið við þá leiðréttingu á virðisaukaskatti sem frumvarpið boðar en auðvitað er rétt að hafa augun á minni ferðaþjónum hvað þetta varðar og ýmsar aðrar reglur. Mér finnst bara jákvætt að geta átt hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins að í því að leggja áherslu á að skoða rekstrarumhverfi minni aðila í ferðaþjónustu. Ég held að það sé mikils um vert og að eitt það versta fyrir þá sé hár vaxtakostnaður og ef við náum því fram með þessu frumvarpi, hallalausum fjárlögum, þá er til einhvers unnið, að ná þessari áætlun og fjárlögum næsta árs þannig að það geti stuðlað að lægri vöxtum.