158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[12:59]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Það er alveg ljóst að baðlónin hafa almennt skilað miklum ágóða og það er auðvitað, eins og ég nefndi hér, þannig að hagnaður fyrir fjármagnsliði var á níunda milljarð og afskriftir á árinu 2023. Ég nefndi að minni baðlónin væru mögulega áhyggjuefni en það eru fleiri þættir sem snúa þá að minni ferðaþjónustuaðilum á landsbyggðinni. Ég tel ekki raunhæft að fjárlaganefnd hniki þessu mikið við miðað við stöðuna og þau markmið sem við ætlum væntanlega að vera sammála um, þ.e. að ná ríkisfjármálunum saman þannig að tekjur dugi fyrir gjöldum. Ég held að það sé mjög mikilvægt. Þetta er einn liður í því. Ég tel að þessu verði ekki hnikað til en ég er tilbúinn að leggja talsverða vinnu og áherslur í það að skoða sérstaklega hag minni ferðaþjónustuaðila á landsbyggðinni og bara í landinu og ekki endilega að taka þennan þátt út úr hvað það varðar. Mér finnst það ekki vera raunhæft út frá þeirri stöðu sem uppi er.

En það eru líka fleiri þættir sem ég nefndi sem rétt er að staldra við og geta gefið enn meiri fjármuni. Þá vil ég nefna að nýta þær veiðiheimildir sem hafa verið gefnar út og ég skora á hv. þingmenn Framsóknarflokksins að skoða það. Ef þeir hafa myndað sér skoðun á því að helmingurinn af ufsaaflanum sé ekki nýttur nema í eitthvert brask þá eru þarna fjármunir sem er eðlilegt fyrir hagsýna húsmóður og hagsýna þingmenn að skoða; að menn fari að nýta þessa auðlind í annað en tegundatilfærslur og eitthvert brask. Það væri fróðlegt að heyra afstöðu hv. þingmanns til þess ef hún hefur myndað sér skoðun hvað það varðar.