158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[13:06]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Við ræðum hér fjárlagafrumvarp ársins 2027 og þar kemur fram markmiðið að það eigi að ná jafnvægi í ríkisfjármálum sem er mjög mikilvægt markmið og um það þarf í rauninni ekkert að deila því að ríkissjóður getur ekki verið rekinn áfram með viðvarandi halla og safnað skuldum og látið sífellt stærri hluta tekna sinna fara í vaxtagreiðslur. En spurningin er hins vegar ekki hvort markmiðið sé rétt og hvort við séum öll sammála því. Spurningin í mínum huga er einfaldlega hvort þetta frumvarp sé trúverðug leið til að ná því markmiði og hvort við sem hér sitjum völdum því verkefni að láta áætlanirnar standast því að sú ábyrgð hvílir á okkur öllum en um hana er sjaldan rætt.

Ríkisstjórnin áætlar að það verði 4,7 milljarða afgangur af 1.700 milljarða veltu. Það eru tæpar 3 kr. af hverjum 1.000 kr., um 0,3%. En halli ársins 2026 sýnir hvers vegna það skiptir máli því að fjárlög þessa árs gerðu ráð fyrir 28 milljarða halla. Núna í byrjun septembermánaðar, stefnir í nærri 70 milljarða halla. Afkoman verður rúmlega 39 milljörðum lakari en Alþingi samþykkti hér fyrir innan við ári. Hallinn í ár, tæpir 70 milljarðar, er meiri en allt ríkið ver í lyf og lækningavörur á heilu ári. Hann er meiri en allt framhaldsskólastigið kostar, allir framhaldsskólar landsins, bara hallinn einn á þessu ári. Hann er á við fjórar nýjar legudeildir eins og þá sem verið er að byggja núna við Sjúkrahúsið á Akureyri og frávikið eitt, það sem bættist við umfram það sem Alþingi samþykkti, er jafn hátt öllum fjárfestingarframlögum til samgangna á næsta ári. Heilt ár af vegaframkvæmdum bara horfið í fráviki á einu ári, horfið út í hafsauga. Tvöfaldar barnabætur, átta sinnum nýja innviðagjaldið, sem er reyndar óútfært. Ég get haldið áfram. Þetta eru ástæðurnar fyrir því að framkvæmd fjárlaga skiptir ekki minna máli heldur en fjárlögin sjálf. Það er ekki nóg að samþykkja rétta tölu í desember. Það þarf að viðhalda henni allt árið. Hver milljarður sem fer fram úr er milljarður sem fer ekki í þjónustu, innviði eða lækkun skulda og kemur til baka sem vaxtagjöld árið eftir. Hallinn, við vitum það, er ekki eitthvað til þess að leysa í excel-skjali eða er eitthvað bókhaldsatriði. Hann er tekinn af einhverju öðru í staðinn.

Frú forseti. Veltum því fyrir okkur: Hvar er hallinn tekinn? Hvar er hann lagður á? Er hann lagður á einstætt foreldri og fólk sem býr langt frá vinnu og þjónustu og þarf að nýta sér m.a. bílinn sem eina samgöngumátann til að geta sótt vinnu, þjónustu og skóla? Hér virðist ýmislegt skorta þegar kemur að því hvernig við ætlum að afla þessara gjalda og hvort þau raunverulega skili árangri og hvort þær tekjur sem við erum að afla á þessu ári séu að skila sér að fullu. Því miður erum við hrædd um að það gangi ekki eftir. En hvaða afleiðingar hafa þessar hækkanir? Hvaða afleiðingar hefur það að hér er verið að leggja til 5,2% hækkun opinberra gjalda tvöfalt umfram verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands? Hvaða áhrif hefur það á venjulegt fólk? Hvaða áhrif hefur það á landsbyggðina? Það er ekki nóg að byrðunum sé dreift með sanngjörnum hætti. Það þarf að sýna fram á það hvernig það er gert. Reikningurinn endar ekki bara hjá heimilunum. Fjárfesting atvinnuveganna dregst saman um tæp 3% á næsta ári samkvæmt frumvarpinu sjálfu. Svarið er að lækka framlög til nýsköpunar um tíund og skera endurgreiðslur vegna rannsókna niður um 1,7 milljarða. Þegar fjárfesting dregst saman á ríkið að skapa hvata. Það á ekki að fjarlægja þá.

Af 44 milljarða aðhaldi er stór hluti frestun framkvæmda sem frumvarpið sjálft viðurkennir að geti kallað á fjárveitingu síðar. Kostnaðinum er hér bara ýtt fram í tímann, hann hverfur ekkert. Sjúkratryggingar fara um 12 milljarða fram úr áætlunum á þessu ári og frumvarpið segir að grípa þurfi til aðgerða vegna þessa en segir ekki til hvaða aðgerða þarf að grípa. Rekstur Landspítalans, Sjúkrahússins á Akureyri og heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni stefnir í 11 milljarða framúrkeyrslu. Frumvarpið gerir áfram ráð fyrir rekstrarhalla og segir að hagræðing hafi gengið hægar en vonir stóðu til.

Stöldrum aðeins við hér. Hér eru engar upplýsingar um hvað eigi að gera eða hvernig til að koma í veg fyrir framúrkeyrslu með svipuðu sniði árið 2027. Hæstv. fjármálaráðherra talaði um aga hér í ræðu sinni í dag. Við þurfum að fá að sjá leiðina, við þurfum að sjá aðgerðirnar. Það er það sem við í stjórnarandstöðunni höfum verið að kalla eftir. Í þessu ljósi vil ég líka nefna nýja Landspítalann því framlag til verkefnisins er lækkað um tæpa 10 milljarða frá því sem fjármálaáætlun gerði ráð fyrir í júní. Rökin eru að félagið eigi 20 milljarða í ónýttum heimildum og tímaáætlun haldist með því að ganga á þær. En 20 milljarðar í ónýttum heimildum eru ekki merki um að verkefnið sé á áætlun. Það er merki um að framkvæmdir hafi gengið hægar en gert var ráð fyrir. Það skortir svolítið gagnsæi og það þýðir að opnun nýs Landspítala mun verða síðar en áætlanir gerðu ráð fyrir. Eða hvað? Getur hæstv. ráðherra ábyrgst að nýr spítali opni á þeim tíma sem áætlað hefur verið? Hvað mun hvert ár seinkunar kosta? Hver mánuður sem nýr spítali frestast um veldur tjóni og skaða, m.a. hjá starfsfólki og sjúklingum, starfsfólk sem er undir miklu álagi í dag.

Sama gildir um menntamálin. Óvenjustórir árgangar eru að hefja nám í framhaldsskólum. Samt er skólunum gert að mæta 1,2 milljarða aðhaldskröfu og líka gert að greiða upp uppsafnaðan halla. Við megum ekki segja að það sé verið að passa upp á skólana þegar tölurnar segja okkur allt aðra stöðu.

Ég hef einnig áhyggjur af því hvernig árangurinn er mældur. Það er risastórt atriði. Markmið málefnasviðanna eru almenn, það er viðvarandi þema hérna að stytta biðtíma, auka gæði, efla mönnun. Alþingi fær ekki töluleg viðmið í skjalinu sem það samþykkir. Mælikvarðarnir eru á vefsíðu. Það þarf að hugsa þetta allt saman betur. Fjármálaáætlun setti markmið um að fólk fengi hjúkrunarrými innan 90 daga. Það markmið er ekki að finna í frumvarpinu. Lög um opinber fjármál byggjast á varfærni, festu og gagnsæi og þess vegna þurfum við að breyta vinnubrögðunum. Forsendur uppfærðar á hverju stigi frá fjármálaáætlun til ríkisreiknings, mælanleg markmið í þingskjölunum sjálfum, raunverulegir varasjóðir, fjáraukalög fyrir ófyrirséð atvik, ekki árlega leiðréttingu á því sem var fyrirsjáanlegt.

Með sama ramma myndum við í Framsókn hugsanlega forgangsraða með öðrum hætti. Mig langar að nefna þrennt hér þar sem tíminn leyfir ekki mikið meira en við myndum gjarnan vilja sjá hvata fyrir fjárfestingu og nýsköpun í stað þess að skera niður þegar fjárfesting dregst saman. Við myndum vilja sjá framkvæmd fjárlaga sem styður við að tryggja að áætlunum sé fylgt og að til sé varasjóður sem dugar ef áföll verða. Ríkið verðtryggi ekki eigin tekjur á meðan stuðningur við fjölskyldur er frystur.

Virðulegi forseti. Ég styð heils hugar markmið um hallalaus fjárlög en afgangur sem byggist á viðkvæmum og jafnvel umdeilanlegum forsendum, auknum álögum og frestun kostnaðar er ekki nægilega trúverðugur. Fjárlög ssem standast eru lykilatriði, ekki aðeins markmið um hallalaus fjárlög. Fjárlög næsta árs hafa mikil áhrif á það hvort hægt sé að lækka vexti, styrkja heilbrigðisþjónustu, mennta stóra árganga á viðunandi hátt og tryggja eðlilegt viðhald í landinu, allt á sama tíma. Fjárlög sem standast eru eitt stærsta velferðarmál þjóðarinnar. Það er verkefni Alþingis að veita ríkisstjórninni raunverulegt aðhald og krefjast svara þegar áætlanir standast ekki eða virðast settar fram á veikum grunni. Við getum ekki kastað ryki í augu fólks, við verðum að leggja fram raunhæfar áætlanir og fylgja þeim eftir þannig að þær skili sömu niðurstöðu og við samþykkjum hér í þingsal.

Við í Framsókn munum leggja okkur fram og sinna okkar hlutverki af festu, fagmennsku og ábyrgð og við munum koma að verkefninu með lausnamiðuðum og uppbyggilegum hætti en líka með gagnrýni vegna þess að við hér inni erum öll í vinnu fyrir fólkið í landinu og eitt stærsta hagsmunamálið okkar hér inni á að vera að ná tökum á verðbólgu og vöxtum.