fjárlög 2027.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir ágæta ræðu og brýningu sem ég tek heils hugar undir. Ég vil taka fram, eins og ég gerði í andsvörum hér áðan, að það eru þrjú meginverkefni sem ég í mínu embætti hef staðið fyrir til að tryggja nákvæmlega það sem hv. þingmaður vék að, sem er að fjárlögum sé framfylgt. Það er að ljúka við innleiðingu rammasettra ríkisfjármála sem er verkefni sem hófst á dögum fyrirrennara míns, Friðriks Sophussonar, en var aldrei lokið en hefur núna verið að fullu innleitt. Núna erum við síðan að leggja áherslu á framkvæmd fjárlaga. Þriðja verkefnið, sem er nýlunda, er endurmat útgjalda. Ég tek hins vegar undir með hv. þingmanni að það megi, held ég, herða á aðhaldi Alþingis. Alþingi setur þennan ramma. Alþingi á líka að fylgja honum eftir. Nú fengum við upplýsingar um það við upphaf þingfundar að hv. þingmaður mun nú taka sæti í fjárlaganefnd og mig langar til að spyrja hana hvort hún sé mér sammála um mikilvægi þess að fjárlaganefnd beiti sér til að tryggja einmitt eftirfylgni við framkvæmd fjárlaga og með hvaða hætti hún sér fyrir sér að beita sér í fjárlaganefnd.