fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið og fagna því að við erum nokkurn veginn sammála þegar kemur einmitt að þessu, framkvæmd fjárlaga. Eins og ég kom að í máli mínu áðan þá eru markmiðin um hallalaus fjárlög jákvæð og góð og ég held að allir styðji þau. Það er bara spurning um tímasetninguna, það er spurning um aðferðafræðina til að ná þeim. Hafandi skoðað þessi fjárlög og áhrifin sem þau hafa m.a. á venjulegt vinnandi fólk hér í landinu og fyrirtæki um land allt er ég smeyk um að þessi markmið náist ekki, að trúverðugleikinn varðandi þessi fjárlög sé ekki meiri en svo að ríkisstjórnin sjálf trúi ekki á verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Það er miður.
Þegar kemur að vinnu fjárlaganefndar við að fylgja eftir fjárlögum þá mun ég leggja mitt af mörkum, vissulega. En það er ekki þar með sagt að ég sé sammála öllu því sem kemur fram hér í fjárlögunum og þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin er að leggja til. En það er afar mikilvægt að stofnanir og fyrirtæki fylgi því eftir sem er sagt hér, vissulega. Við þurfum samt líka að vera raunsæ og við verðum að trúa á verkefnin sjálf og það er afar mikilvægt. En eins og ég sagði áðan í minni ræðu þá munum við í Framsókn vissulega koma að með lausnamiðuðum og uppbyggilegum hætti en líka sýna ríkisstjórninni aðhald.