fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir framsöguna á fjárlagafrumvarpinu og einnig þá umræðu sem fram hefur farið hér í dag á meðal hv. þingmanna. Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 markar mikilvægt skref í átt að ábyrgum og sjálfbærum ríkisfjármálum. Meginboðskapur fjárlagafrumvarpsins fyrir 2027 er skýr. Við verðum að ná jafnvægi í rekstri ríkisins og við megum ekki eyða meiru en við öflum. Heilbrigð ríkisfjármál eru forsenda stöðugs efnahagslífs, traustrar velferðar og bættra lífskjara til framtíðar. Í frumvarpinu er stefnt að um 5 milljarða kr. afgangi. Það er mikilvægur áfangi eftir mörg ár þar sem ríkissjóður hefur glímt við verulegan halla og aukna vaxtabyrði. Uppsafnaður halli frá 2026 er 866 milljarðar kr. og við verðum að stöðva þennan hallarekstur. Efni frumvarps hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra er skýr vísbending um að ríkisstjórnin sé tilbúin að taka á vandanum í stað þess að fresta honum og það er mikilvægt skref.
Þegar ríkið eyðir meiru en það aflar til lengri tíma hefur það áhrif á allt samfélagið. Hallarekstur ríkisins er ekki bara mál fjármálaráðuneytisins eða tölur í excel-skjölum. Við þurfum að tala hreint út um stöðu ríkissjóðs. Hún er ekki einkamál stjórnvalda ef hún hefur áhrif á allt samfélagið. Það er ekki sjálfbært að fjármagna aukin útgjöld með lántökum. Tekjur og gjöld verða að vera sem næst í jafnvægi. Við getum ekki heldur leyft okkur að líta á vexti sem ríkið þarf að greiða sem óhjákvæmilegan kostnað. Hver króna sem fer í vexti verður ekki notuð í heilbrigðisþjónustu, menntun, löggæslu, samgöngur eða félagslegt öryggi. Þegar skuldabyrði eykst minnkar svigrúmið. Þegar vextir hækka verður erfiðara að verja grunnþjónustuna og þegar ríkissjóður er veikur verður hann berskjaldaðri fyrir sveiflum í efnahagslífinu. Þess vegna er hallalaus rekstur ekki andstæða velferðar, hann er ein af forsendum þess að við getum staðið undir velferðinni. Við getum ekki leyft okkur að taka velferðina að láni. Það er auðvelt að lofa auknum útgjöldum. Það er auðvelt að segja að allar þarfir séu brýnar og forgangsröðun sé erfið. Ábyrgir stjórnmálamenn lofa ekki öllum öllu. Verkefnið er að velja, forgangsraða og tryggja að það sem skiptir mestu máli sé fjármagnað til framtíðar.
Einn af styrkleikum þessa frumvarps er að áherslan er ekki eingöngu á aukna tekjuöflun heldur einnig á betri nýtingu almannafjár. Við þurfum að geta svarað því að hvert og eitt verkefni sé að skila þeim árangri sem að var stefnt. Ef svo er ekki þarf að endurskoða og eftir atvikum hætta við verkefnið. Þar kemur að endurmati útgjalda sem stefnt er að. Það er ekki árás á opinbera þjónustu að spyrja hvort hún sé vel rekin. Það er ekki árás á starfsfólk hins opinbera að kalla eftir skilvirkni. Það er ekki árás á velferðarkerfið að vilja tryggja að meiri hluti fjármagnsins fari í þjónustuna sjálfa en ekki óþarfaflækjustig, tvíverknað eða ómarkvissa stjórnsýslu. Við eigum að verja grunnþjónustuna en við eigum einnig að vera tilbúin að endurskoða það sem betur má fara, einnig í grunnþjónustunni. Góð stjórnun, skýr verkaskipting, samræmd innkaup, einfaldir verkferlar og markviss forgangsröðun geta skilað verulegum árangri án þess að dregið sé úr gæðum þjónustunnar. Stundum snýst ábyrgð ekki um að gera minna heldur um að gera betur og í því sambandi ber að líta á hagræðingu.
Frú forseti. Í þessu frumvarpi er horft til þess hvernig hægt sé að fjármagna uppbyggingu og verndun innviða sem eru undir miklu álagi. Íslensk náttúra er auðlind sem er í eigu þjóðarinnar. Hún hefur mikið gildi fyrir okkur sem hér búum en hún er einnig mikilvægur grundvöllur ferðaþjónustunnar. Álagið á marga ferðamannastaði hefur aukist hratt. Það kallar á betri stíga, salerni, merkingar, eftirlit, björgunaraðstöðu og náttúruvernd. Við getum ekki sætt okkur við að náttúruperlur láti verulega á sjá vegna fjölda ferðamanna sem þangað koma. Við getum ekki heldur ætlast til þess að íslenskur almenningur beri allan kostnað við uppbyggingu og innviði á slíkum stöðum. Rétt útfærð gjaldtaka er hvort tveggja sanngjörn og skynsamleg. Hún getur líka tryggt betri aðstöðu fyrir gesti, betri vernd fyrir náttúruna og minni kostnað fyrir íslenska skattgreiðendur.
Fjárlagafrumvarpið hefur mikilvægu hlutverki að gegna í baráttu okkar gegn hárri verðbólgu. Við vitum að verðbólga bitnar ekki jafnt á öllum og kemur harðast niður á þeim sem hafa minnst svigrúm. Verðtrygging er mjög útbreidd í okkar samfélagi, svo sem af húsnæðislánum og leigusamningum. Ríkisstjórnin hefur kynnt að hún stefni að því að fasa út verðtryggingu og það verður spennandi að sjá fyrstu skref í því efni fljótlega. Verðbólga rýrir kaupmátt og gerir heimilum erfiðara fyrir að skipuleggja framtíðina. Hún hækkar kostnað fyrirtækja, dregur úr fjárfestingu og getur grafið undan störfum og samkeppnishæfni. Ríkisfjármálin eru ekki eina orsök verðbólgu en þau skipta máli. Þegar hið opinbera eyðir um efni fram eykst eftirspurnin í hagkerfinu og þrýstingur myndast á verð og vexti. Með því að færa ríkissjóð í betra jafnvægi er dregið úr þeim þrýstingi. Þess vegna er ábyrg fjármálastefna einnig kjaramál. Það er ekki sjálfbært að hækka laun ef verðlag hækkar strax á eftir með öllum þeim afleiðingum sem fylgja hærra verðlagi. Langtímalausnin felst í stöðugra efnahagsumhverfi, traustum ríkisfjármálum og aðgerðum sem verja kaupmátt almennings. Mikil lántaka ríkissjóðs getur leitt til þess að vextir hækki þar sem eftirspurn eftir lánsfé eykst og vaxtabyrði lendir á almenningi og getur leitt til verri kjara fyrir fyrirtæki og ríkissjóð. Betri staða ríkissjóðs getur því skapað skilyrði fyrir lægri vöxtum til lengri tíma. Hún mun auðvelda heimilum að standa undir húsnæðislánum og fyrirtækjum að ráðast í uppbyggingu. Við skulum þó vera raunsæ. Fjárlagafrumvarpið eitt og sér lækkar ekki vexti en það getur lagt grunn að trausti og stöðugleika. Það getur sýnt að stjórnvöld séu tilbúin að taka ábyrgð og vinna með öðrum aðilum að því að ná verðbólgu niður og þá fylgir lækkun vaxta.
Við lok þessarar 1. umræðu gengur frumvarpið til hv. fjárlaganefndar og þar verður farið vandlega yfir einstaka þætti frumvarpsins. Við þurfum að ræða tekjuöflun, gjöld, forgangsröðun og áhrif á heimili og fyrirtæki af ábyrgð. Við þurfum að vera gagnrýnin en jafnframt ærleg við þessa vinnu í nefndinni. Það er ekki nóg að gagnrýna hvert aðhaldsskref án þess að benda á raunhæfan valkost. Sá sem vill auka útgjöld verður að segja hvernig þau eigi að fjármagna. Sá sem vill lækka gjöld verður að sýna hvaða verkefnum eigi ekki að sinna og sá sem hafnar afgangi eða aðhaldi verður að svara því hvernig hann hyggist takast á við hallann, vaxtagreiðslurnar og áhættuna sem fylgir skuldasöfnun. Heimili og fyrirtæki þurfa að forgangsraða á hverjum degi. Þau þurfa að taka erfiðar ákvarðanir þegar tekjur duga ekki fyrir öllum útgjöldum. Ríkið verður að lúta sömu grundvallarlögmálum. Það er ekki ósanngjarnt að segja það, það er nauðsynlegt.
Í þessu frumvarpi til fjárlaga er tekið á málum af ábyrgð, verkefnum er forgangsraðað, reksturinn er bættur og ríkissjóður er færður í meira jafnvægi en verið hefur. Fjárlagafrumvarpið boðar afgang í rekstri ríkissjóðs. Það leggur áherslu á betri nýtingu almannafjár. Það styrkir forsendur verðstöðugleika. Það stuðlar að meiri trúverðugleika á efnahagslegan stöðugleika. Það skapar von um að hægt verði að verja grunnþjónustuna betur til framtíðar vegna þess að ríkissjóður verði betur í stakk búinn til að standa undir henni. Við eigum að ræða útfærslurnar af alvöru. Við eigum að leiðrétta það sem betur má fara en við eigum ekki að missa sjónar á aðalatriðum og við megum ekki fresta því að taka erfiðar ákvarðanir.
Frú forseti. Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 hefur skýra stefnu og það mikilvæga markmið að koma ríkisfjármálum á traustari grundvöll. Það er jákvætt. Það er skynsamlegt og það er löngu tímabært. Með ábyrgri forgangsröðun, betri nýtingu almannafjár og skýrri sýn til framtíðar getum við styrkt ríkissjóð, varið velferðina og skapað betri skilyrði fyrir heimili, fyrirtæki og komandi kynslóðir. Ég fagna því þeirri stefnu sem birtist í frumvarpinu og styð markmið um að færa ríkissjóð úr langvarandi halla í jafnvægi. Ég hlakka til vinnu við meðferð málsins í fjárlaganefnd.