fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Hans innlegg í ræður á Alþingi Íslendinga eru alla jafna málefnaleg og góð. En það sem ég vil spyrja hv. þingmann um, því að ég fæ oft þá spurningu, er: Þetta með Viðreisn — hvað skeði eiginlega? Ég held að flestir hafi trúað bæði formanni Viðreisnar og formanni Samfylkingar þegar það var sagt, svo skýrt að ekki fór neitt á milli mála, að ekki ætti að hækka skatta. Nú voru báðir þessir flokkar auðvitað í stjórnmálum og á þingi og þekktu allar aðstæður þegar þeir tóku við. Við vitum að tekið var við góðu búi og þessi hörmungarmál, Covid og Reykjaneseldar, voru búin. En síðan sjáum við þessar 60 milljarða skattahækkanir sem eru nokkurn veginn á allt og ekkert. Ég vil því spyrja hv. þingmann: Hvað skeði?
Þetta eru ekki litlar skattahækkanir og þetta er nokkurn veginn á alla þá sem hægt er að hækka skatta á — og ætla núna að koma inn með náttúrupassann þegar sú leið var farin að hækka sértekjur til að fjármagna innviði, bílastæði, salerni og annað slíkt. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu ætla menn að gefa í með það; þetta eru verulegar fjárhæðir og bæta í ofanálag á þetta skatti, bara svo að dæmi sé tekið. En síðan ertu auðvitað með tekjuskattinn á einstaklinga og nú fær ferðaþjónustan virkilega að finna fyrir þessu og það heyrist þungt hljóð frá landsbyggðinni eftir að frumvarpið kom fram. Af hverju var Viðreisn svona skýr á því fyrir kosningar að ætla ekki að hækka skatta þegar raunin er þessi?