fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Auðvitað gæti einhver sagt að það væri ekki sanngjarnt að spyrja hv. þingmann en þó er það þannig að hv. þingmaður er einn af forystumönnum Viðreisnar og þau hljóta að ræða þessi mál. Ég get ekki ímyndað mér annað en að það hljóti að vera snúið að útskýra þetta fyrir fólki sem kaus flokkinn í þeirri góðu trú að þau myndu ekki hækka skatta. Þegar allt er saman tekið eru þetta 60 milljarðar. Nú eru margar leiðir til að hækka skatta. Eitt er að hreyfa akkúrat við þessari tölu sem hv. þingmaður vísaði til og ná þá 3 milljörðum inn í ríkissjóð. Það þýðir að fólk borgar 3 milljörðum meira í tekjuskatt en það ella hefði gert, eins og þegar samnýtingin var tekin af. Menn ganga sömuleiðis mjög hart fram í krónutölugjöldum, svo dæmi sé tekið.
Núverandi forsætisráðherra sagði á síðasta kjörtímabili að þegar ríkisstjórnir gerðu ekki nóg til að halda aftur af verðbólgu þyrfti Seðlabankinn að gera meira. Hv. þingmaður þekkir það að fjármálaráð kom með mjög alvarlegar athugasemdir við fjármálaáætlun sem ekkert var gert með. Ef hv. þingmaður vill bæta einhverju við til að skýra málið betur, hvað gerðist með Viðreisn og skattana, þá væri það gott. Ég spyr líka hv. þingmann: Hefur hann ekki neinar áhyggjur af því að við séum ekki að fara eftir ráðleggingum færustu manna þegar kemur að fjárlögum og fjármálaáætlun? Það er alveg sama hvernig menn snúa því, það er ekki einu sinni tilgreint í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar, fjármálaáætlun var ekki einu sinni uppreiknuð. Það er komið í ljós að það sem fjármálaráðherra sagði reyndist rétt. Þetta voru allt of bjartsýnar forsendur. En sömuleiðis er vísað til þess að breytingar á lögum sem ríkisstjórnin stóð fyrir ýti undir ósjálfbærni. Ég vil sömuleiðis nefna að þetta muni ekki slá á verðbólguvæntingar þegar menn ganga áfram með fjármálaáætlun sem felur í sér eins mikla skuldahækkun og raun ber vitni. Er þetta ekkert áhyggjuefni fyrir hv. þingmann?