fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans síðara andsvar. Ég ætla fyrst að svara þessu eins og ég get varðandi skattana, eins og mér finnst þetta persónulega. Mér finnst það raunverulega afleitt, ef ég á að segja alveg eins og er, að það þurfi að fara í það að hækka skatta. En ég var að reyna að benda á það áðan að þegar það þarf að loka gati sem hefur myndast vegna þess að það er uppsafnaður halli, töluvert há fjárhæð, þá getur þurft að fara aðra leið en maður ætlaði að fara áður. Það er afleitt að þurfa að hækka skatta en stundum þarf að gera afleita hluti og þá þarf að velja þá skatta sem eru minnst erfiðir fyrir fólk.
Ég komst ekki yfir það áðan sem ég vildi segja varðandi ferðaþjónustuna. Það sem verið er að tala um eru baðlónin. Baðlónin hafa verið með 11% virðisaukaskatt á sína þjónustu og hann verður nú hækkaður í 24% eins og á við um svo margt annað sem ferðamenn nýta í sinni dvöl hér og líka auðvitað Íslendingar. Það er þannig bara komið að því að baðlón sem eru gríðarlega mikil fjárfesting — ég tékkaði á því áðan að í einu svona baðlóni þá er lægsta gjaldið einhverjar 7.690 kr. Auðvitað er það töluverð hækkun sem kemur á þetta gjald en það er spurning hvernig það leggst á þá sem veita þjónustuna og á þá sem nýta hana. Það er að einhverju leyti hægt að horfa til þess hvort skatturinn leggist á með jöfnum hætti eða hvort hann verður einfaldlega settur alveg á gjaldið. — Ég biðst velvirðingar á því að komast ekki lengra með spurningarnar.