158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[13:43]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Virðulegi forseti. Með ákveðinni einföldun má segja að stjórn efnahagsmála sé eins og að smala fé af fjalli. Aðstæður í smölun, líkt og í raunheimum efnahagsmála, eiga það nefnilega til að breytast. Á fjalli getur skyggni breyst hratt með veðrum og vindum og oft þvert á spár. En einmitt þá skipta viðbrögðin við aðstæðum miklu máli. Þá reynir á leiðtogann, sem er fjallkóngurinn eða -drottningin, að vinna með samsmölum að því að ákveða aðgerðir og forgangsröðun án þess að missa sjónar á markmiðinu. Markmiðið í smölun er ekki bara að komast sem hraðast niður af fjallinu. Nei, markmiðið er að fé komi af fjalli og fólk með.

Hér á Alþingi í dag erum við að ræða lykilmál, við erum að ræða allt annars konar fé; fjárlög ríkisins. Í þeim er einmitt áherslan of mikil á það að komast sem allra hraðast niður af fjallinu, komast sem allra hraðast í núllið án þess að hugsa endilega um það hver áhrifin eru á verðmætasköpun, hver áhrifin eru á fólk þannig að við séum að passa upp á það að allt þetta skili sér með. Ég hef áhyggjur af því sömuleiðis hvaða skilaboð við erum að senda sem snúa að vöxtum og verðbólguþróun í landinu.

Heilt yfir hef ég áhyggjur af því að það sé ekki búið að hugsa á dýptina, innleiðinguna til enda og kannski mest af því að við séum ekki búin að skilgreina nægilega vel í þessu ferli öllu saman hvernig eigi að meta og mæla árangur. Það er t.d. erfitt að sjá hvernig fjárfesting í menntun eigi að leiða af sér umbætur. Það er erfitt að sjá þegar við horfum á stöðu framhaldsskólanna hver mælanleg markmið árangurs eiga að vera meðan það er ekki verið að auka fjárfestingu og setja mælanleg markmið sem við ætlum að ná saman. Þá er erfitt að átta sig á því hvernig fé á að nýtast. Og kannski heilt yfir er það sem ég hef mestar áhyggjur af að það er óljóst varðandi þá fjárfestingu sem við erum að setja fram í gegnum þessi fjárlög hvaða mælanlega árangri við ætlum að ná fram. Ég held að þegar við erum á svona erfiðum tímum, við erum að reyna að skera niður, þá sé það þessi mælanleiki sem skipti öllu máli varðandi verkefnin sjálf.

Ég vil taka fram að í fjárlögunum er auðvitað markmiðið um að sýna aðhald mikilvægt. Það er misjafn sauður í mörgu fé, ef svo má segja, en það er auðvitað margt sem er líka jákvætt. Mig langar til að byrja á því að draga fram nokkur slík atriði. Mér finnst jákvætt að sjá að það hefur verið brugðist við þeim ábendingum sem við komum með áður um að það þurfi að fjárfesta meira í íslenskukennslu fyrir þá sem hafa flutt hingað til lands. Ef við gerum það ekki þá erum við að grafa undan samfélaginu okkar. Við erum að skapa átök, við erum að velta kostnaði út í menntakerfið og víðar sem skapar álag. Það er jákvætt að við séum að horfa á meiri fjárfestingar í þessu þó að ég myndi gjarnan vilja að við værum með mælanleg markmið þannig að fjárfestingin væri að skila sér í ákveðna kvarða og við gætum mælt hvort fjárfestingin sé að standa undir þeim væntingum sem við setjum fram. Það er líka jákvætt ef við horfum t.d. á málefni aldraðra, málefni heilsugæslu og sjúkraþjálfunar, að sjá að þar er verið að bæta í fjárfestingu og það eru allt dæmi um málaflokka sem verulega þurfa á slíkri fjárfestingu að halda. Það má hrósa fyrir það að verið sé að ýta undir fjárfestingu í þeim sérstaklega.

Dæmi um forgangsröðun sem ég er hugsi yfir eru mörg. Það er ýmislegt sem er óskýrt og ég vonast til að umræðan um þetta mál muni varpa frekara ljósi á. Í fyrsta lagi hef ég áhyggjur af því í samhengi við samgöngumálin hvernig nýtt innviðafélag verði fjármagnað. Mér finnst vera óljóst hvernig Fljótagöng t.d. eru fjármögnuð í þessu mikilvæga plaggi. Það skiptir máli fyrir þingheim, sem á að vera að ræða grundvallarupplýsingar, að þær upplýsingar liggi allar saman fyrir svo að við getum tekið afstöðu til þess hvort fjárlög séu raunhæf eða ekki. Sama á við í raun og veru um kílómetragjaldið. Það vantar alla greiningu fyrir þingmenn á því hvaða áhrif það raunverulega hefur á ólíka íbúa, hvað það þýðir fyrir íbúa landsbyggðarinnar og hvað það þýðir fyrir atvinnulífið. Við þurfum að sjá betri upplýsingar til að það sé hægt að meta þessar álögur sem vissulega eru miklar og auknar og maður getur ímyndað sér að þær komi verst niður á landsbyggðinni.

Í orkumálunum verð ég að segja að í samhengi við yfirlýsingar um áherslu á orkuskipti þá virðist vera sem svo að hér sé um að ræða blauta tusku framan í þá vegferð. Við erum að sjá svo mikla lækkun á Orkusjóði og ég velti fyrir mér þegar við horfum á orkusjálfstæði Íslands, horfum á uppbyggingu innviða á landsbyggðinni í samhengi við hleðslustöðvar, í samhengi líka við rafvæðingu hafna og aðra mikilvæga orkuinnviði, hvernig áherslur ríkisstjórnarinnar og lögbundin markmið sem við höfum þegar gengist undir, ríma við þá mynd sem virðist vera sett fram hér.

Á sviði menntamála er margt sem ég er hugsi yfir. Heilt yfir er ég hugsi yfir hvernig við erum að fjárfesta í þeim málaflokki almennt. Ég er hugsi yfir því hvort við séum að fjárfesta kannski í tannhjólum sem þarf að endurnýja eða slípa til miðað við áherslur og niðurstöður PISA-könnunarinnar. Hér þarf að gera róttækari breytingar og það þarf að fjárfesta í samhengi við þær. Ég nefndi líka áðan framhaldsskólana sem eru annað dæmi um að framtíðarverðmætasköpun Íslands sé ógnað ef við fjárfestum ekki í málaflokknum sem framhaldsskólar eru. Það er eitthvað sem ég hef verulegar áhyggjur af. Mér hefur einnig borist það til eyrna að það sé verið að skera niður í fjárfestingu í innleiðingu farsældarinnar sem er mjög mikilvægt að sé kláruð. Þetta eru dæmi um verkefni sem mér finnst vanta og ég vona að samtal hér við ráðherra síðar í dag varpi betra ljósi á.

Þá komum við að fjórða atriðinu sem mig langar til að draga fram og það er nýsköpun. Nýsköpun er grundvöllur verðmætasköpunar, grundvöllur þess að við séum að byggja fleiri stoðir undir okkar hagkerfi. Það er erfitt að sjá að við séum að sækja fram í því að skapa tækifæri fyrir íslenskt samfélag í þessum fjárlögum. Svo virðist sem það sé niðurskurður í þessum málaflokki á tímum þar sem við einmitt, ef við ætlum að byggja undir hallalaus fjárlög til framtíðar, þurfum að gera miklu betur. Við þurfum að hugsa þetta langt fram yfir einstaka kjörtímabil. Hér er einmitt dæmi um það sem við höfum frekar verið að fjárfesta í nýsköpun þó að það kosti okkur jafnvel einhvern ákveðinn halla núna af því að við erum að byggja undir fleiri stoðir hagkerfisins.

Um landbúnað langar mig að segja að ég hef almennt fagnað þeirri heildarsamstöðu sem mér finnst birtast þegar kemur að áherslunni á nýliðun. En ég verð að segja um leið að mér finnst áherslan ekki birtast í fjárfestingu. Það skortir á hvernig þessi áhersla á nýliðun í landbúnaði birtist með skýrum hætti í fjárfestingu. Það eru ótrúleg tækifæri í matvælaframleiðslu almennt en það þarf kjark ef við ætlum að ná þeim markmiðum og þau þurfa að birtast í þessu lykilplaggi sem varðar framkvæmd verkefna. Þau þurfa að birtast í fjárlögum. Einnig langar mig til að fá skýrari svör frá utanríkisráðherra um hvort hægt sé að nota hluta þeirrar aukningar í fjárfestingu í varnarmálum, í viðnámsþoli og öðru, í innviðafjárfestingu í landbúnaði.

Ég get nefnt fleiri þætti og mun koma til með að ræða áfram um ferðaþjónustuna þar sem mér finnst við þurfa skýrari stefnu (Forseti hringir.) um það hver þáttur greinarinnar á almennt að vera í hagkerfinu. Það eru miklar álögur sem birtast á ferðaþjónustuna sem við þurfum að ræða í þessu framtíðarsamhengi. Það eru heilbrigðismálin o.s.frv. Ég hlakka til samtalsins hér í dag. (Forseti hringir.) Ég vona að það varpi ljósi á suma af þessum þáttum því að það er mikið undir fyrir íslenskt samfélag.

(Forseti (HildS): Forseti beinir því til hv. þingmanna að virða ræðutímann.)