fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu sem er auðvitað lykilspurningin: Auðvitað skiptir máli að við séum að sýna aðhald. Auðvitað hefur það ekki verið gott að það hafa verið að safnast upp skuldir. En ég vil líka, til að gæta sanngirni, af því ég vann áður sem orkumálastjóri á síðasta kjörtímabili fyrri ríkisstjórnar, að það voru auðvitað áföll eins og t.d. Grindavík, Covid og annað sem auðvitað gerðu það að verkum að það var álag í forgangsröðun. Það sem ég vil draga fram hér, hallalaus fjárlög og það að sýna aga og reka ekki ríkið á yfirdrætti, eins og hefur verið fjallað hér um, er mikilvægt en við verðum að passa að þegar við erum á leiðinni að því markmiði að við séum ekki að kippa undan tækifærum til verðmætasköpunar, við séum ekki að hætta að fjárfesta í nýsköpun sem er í raun og veru eitthvað sem skapar okkur tækifæri inn í framtíðina. Við þurfum að passa að við séum í raun og veru ekki að kippa undan okkur fótunum samtímis. Þetta er spurning um hraða, þetta er spurning um forgangsröðun og þetta er líka spurning um heildaryfirsýn. Það er það sem mér birtist t.d. hér í þessu samtali hér áðan varðandi Fljótagöng og samgönguáætlun. Það er mjög óljóst í fjárlögum hvort það sé heilt yfir verið að fjármagna þau göng í þessum fjárlögum. Ef það á síðan að koma með fjáraukalög eða bandorm þá er heildarmyndin ekki að birtast hér og þá ætti frekar að tala um það hreint út núna heldur en að gera ráð fyrir því í einhverjum viðbótarfjárlögum. Þannig að ég vil bara segja: Við þurfum að hafa þessa heildarmynd skýra núna. Við erum öll sammála um að það eigi að ná aðhaldi en fyrir mér er þetta spurning um að passa upp á, alveg eins og við þurfum að passa upp á heilbrigðisgreinar, að verðmætasköpun verði ekki undir. Við eigum svo mikið undir því að hún gangi vel, ekki bara á þessu kjörtímabili heldur inn í framtíðina.