158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:01]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og spurninguna sömuleiðis sem mér fannst vera frekar almenns eðlis. Ég verð bara að segja þetta: Ég sem stjórnarandstöðuþingmaður er að reyna að ná utan um þessa stóru mynd sem birtist í þessu fjárlagafrumvarpi. Mér finnst ekki vera nægilega skýrt hvað við erum að setja mikið í ólíka þætti, þ.e. hvar niðurskurðurinn mun raunverulega koma niður. Ég hef líka áhyggjur af því að þessi mælanleiki á markmiðum, eins og ég nefndi með íslenskukennsluna áðan, sé bara einfaldlega ekki nógu skýr um hvernig við ætlum að raunverulega að meta árangur. Svo þegar þú ert að tala um að velta við hverjum steini og hafa hluti áþreifanlega: Mig langar til að halda aðeins áfram með umræðuna um heilbrigðismálin. Mig langar til að sjá miklu skýrari markmið sem varða t.d. starfsemi lækna á landsbyggðinni. Mig langar til að við séum að ná á sama stað, að það sé t.d. læknisþjónusta á Kirkjubæjarklaustri og almennileg læknisþjónusta sem er núna í vörn í Vík, að þetta sé bara skýrt og það sé fjárfesting í fjárlögum akkúrat fyrir það og við getum mælt árangur, náðist að manna stöðu sem var fjármögnuð eða ekki. Þetta er lítið dæmi en það kannski kristallar þessa heildarhugsun sem mér finnst kannski skorta í frumvarpinu hvað varðar dýptina þannig að þingheimur átti sig raunverulega á því hvað þetta þýði fyrir ólík málefnasvið. Það virðist svo sannarlega vera sem svo að niðurskurður bitni á ólíkum þáttum víða.