158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:04]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Forseti. Við ræðum hér fjármálafrumvarp fyrir árið 2027 sem er um margt áhugavert og mig langar að hlaupa í 1. umræðu og fyrstu ræðu yfir það helsta. Það er meginstefna þessarar ríkisstjórnar að það verði hallalaus fjárlög á næsta ári. Meginmarkmið þessarar ríkisstjórnar hefur verið, frá því að hún var kosin, að lækka hér vexti og verðbólgu í landinu. Það er sá hluti sem hefur gengið mjög erfiðlega og við höfum séð stýrivexti hækka ítrekað á undanförnum mánuðum, um samtals 75 punkta í þremur 25 punkta hækkunum. Heimanmundurinn var nefnilega svolítið góður, það sem kom út úr fjárlögunum sem voru samþykkt hérna í nóvember 2024 fyrir árið 2025: Verðbólga byrjaði að lækka mikið og vaxtastigið um haustið 2024 og hélt áfram að lækka inn í fyrri hluta árs 2025. En síðan þá hefur hallað töluvert undan fæti, síðastliðið ár, í sambandi við þetta. Við erum að tala um að það er reiknað með að afgangurinn verði tæpir 5 milljarðar, 4,7 milljarðar, í 1.700 milljarða fjárlögum eða um 0,1% af landsframleiðslu, eða sirka 0,3% af fjárlögunum í afgang.

Til að ná þessari niðurstöðu eru boðaðar aðgerðir upp á tæplega 66,6 milljarða, sérstök tala sem kemur þarna upp. 44 milljarðar felast í hagræðingu og útgjaldabreytingum en um 22,6 milljarðar eiga að koma frá auknum tekjum og breytingum á tekjuáætlun. Það er áhugavert að skoða hvar aðhaldið er að koma fram, sem það gerir fyrst og fremst og að stærstu leyti í fjárfestingarhlutanum, eða 25,7 milljarðar af 44 milljörðum. Síðan er reksturinn tæpir 18,5 milljarðar í hagræðingunni. Inni í þessari tölu er t.d. Landspítalinn þar sem er gert ráð fyrir að draga úr fjármagni til framkvæmda um 8,9 milljarða, þannig að þetta svokallaða aðhald er fyrst og fremst bara það að verið er að draga úr fjárveitingum inn í framkvæmdir eða fresta framkvæmdum. Það er stór hluti af þessu. Síðan erum við að tala um þessa 22,6 milljarða sem eiga að koma frá auknum tekjum og breytingu á tekjuáætlun þar sem koma til nýir skattar eins og bankaskattur upp á 6 milljarða sem gerir ekkert annað með tíð og tíma en að hækka vaxtastigið, hækka vexti á heimilin og atvinnulífið, skilar sér þangað. Það á að bæta í gjaldtöku í ferðaþjónustu um 5 milljarða. Kílómetragjaldið á að hækka um 4 milljarða. Baðlón eiga að fara í almennt virðisaukaskattsþrep, það eru 4 milljarðar við að hækka úr 11% í 24%. Lækkun endurgreiðslu virðisauka vegna íbúðarhúsnæðis er 3,6 milljarðar, þegar hlutfallið fer úr 35% niður í 20% af endurgreiðslum vegna framkvæmda á byggingarstað.

Mig langaði að koma sérstaklega inn á það sem kemur beint á íslenska ferðaþjónustu. Það virðist vera að ferðaþjónustan eigi svolítið að bera höggið, nýja skatta og gjöld, í þessu frumvarpi og það má tala um að þar sé um enn einn landsbyggðarskattinn að ræða. Flest baðlónin eru með starfsemi úti á landi og gegna stóru og mikilvægu hlutverki sem ferðamannaseglar í ferðaþjónustu. Í Norðausturkjördæmi er öflug starfsemi, fjögur baðlón: Skógarböðin við Akureyri, Jarðböðin við Mývatn, sjóböðin á Húsavík og Vök í Múlaþingi, rétt við Egilsstaði. Áhrifin þar verða sjálfsagt langmest á sjóböðin á Húsavík og Vök við Egilsstaði þar sem vetrarferðaþjónustan er mjög takmörkuð. Þar hafa viðbrögðin verið að menn fara raunverulega að skoða lokanir á baðlónunum fyrir veturinn, sem er auðvitað mjög alvarlegt fyrir alla sem eru að byggja upp heilsársferðaþjónustu á landsbyggðinni. Þetta er mjög slæm þróun fyrir þá, ef þannig fer, og þarna reiknum við með að mesta höggið verði. Það er líka áhugavert að sjá að það virðist ekki vera nein greining í þessu frumvarpi á því hvaða áhrif þetta mun hafa á þessa starfsemi. Það er mikilvægt að það liggi fyrir fullnægjandi greining á áhrifunum áður en við greiðum hér atkvæði, væntanlega í nóvember eða desember, um þetta fjárlagafrumvarp, að það sé komin greining á því hvaða áhrif þetta hefur á landsbyggðirnar. Auðvitað getur þessi sama skattprósenta haft gjörólík áhrif eftir staðsetningu fyrirtækja, árstíðasveiflum og stærð markaðar. Fyrirtæki á landsbyggðinni hafa ekki sama aðgang að stórum heimamarkaði og fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Þau eru háðari ferðamönnum og árstíðasveiflum og hafa oft minni möguleika á að dreifa auknum kostnaði.

Síðan er það kílómetragjaldið, sem kannski koma frekari greiningar á. Það er verið að hækka það um 15,9% á milli ára. Frumvarpið miðar við 5,2% hækkun á krónutölugjöldum og svo eru 10% þar fyrir utan í hækkun á kílómetragjaldinu. Þetta leiðir til þess að kílómetragjaldið hækkar um 4 milljarða umfram almenna verðlagsuppfærslu. Þetta kemur sérstaklega illa við hópferðafyrirtæki, bílaleigur og aðra aðila sem flytja ferðamenn um landið og þess vegna er hér raunverulega um landsbyggðarskatt að ræða.

Það er líka áhugavert að sjá að í þessu frumvarpi er dregið töluvert úr fjárfestingum, nýjum fjárheimildum til fjárfestinga, eins og ég kom inn á áðan, frú forseti. Heildarfjárheimildir til fjárfestinga og fjármagnstilfærslan verða 121,6 milljarðar kr. árið 2027. Þær lækka um 23,7 milljarða á milli ára eða um 16,3%.

Framlög til samgönguframkvæmda verða 37,9 milljarðar og lækka um 2,7 milljarða. Fjárveiting til Vegagerðarinnar lækkar úr 34,7 milljörðum í 32,9 milljarða og framlög til Betri samgangna úr 6,9 milljörðum í 5,1 milljarða. Vissulega skýrist hluti lækkunarinnar af niðurfellingu tímabundinna framlaga og nýtingu uppsafnaðra fjárheimilda en það breytir þó ekki þeirri staðreynd að nýtt fjármagn til fjárfestinga verður minna.

Eins og ég kom inn á lækka fjárheimildir til nýja Landspítalans um 8,9 milljarða.

Mig langaði síðan rétt að minnast á krónugjöldin og áhyggjur af þeim varðandi skemmtiferðaskipin og áhrif þeirra á leiðangursskipin í siglingum í kringum landið. Það er ljóst að það er skelfileg þróun varðandi leiðangursskipin og minni hafnirnar um allt land. Það er að þróast mjög illa og ekki fyrirséð að það batni á næstu árum. Þar er allt á niðurleið eins og þetta hefur verið að þróast undanfarin misseri. Þessi árlega hækkun innviðagjaldsins verður ekki til þess að fjölga skipakomum til þessara smærri staða og hafna og það vantar fyrirsjáanleika. Það að hækka á milli ára um 5,2%, eins og þetta, á nákvæmlega sama tíma og skipafélögin og hagsmunaaðilar hafa verið að benda á að það verði að vera fyrirsjáanleiki til einhvers tíma, til næstu ára, hverju sinni. Þannig að ef það á að fara í þessar hækkanir þarf kannski að breyta svolítið fyrirkomulaginu, hvernig það er gert, til að bæta fyrirsjáanleika.

Mig langar síðan að ræða áföll. Á bls. 94 í frumvarpinu er einungis minnst á heimsfaraldurinn varðandi áföll undanfarinna ára. Við skulum ekki gleyma WOW-áfallinu 2019. Við skulum ekki gleyma Covid 2020–2021. Við skulum ekki gleyma innrás Rússa í Úkraínu í febrúar 2022 og við skulum ekki gleyma jarðhræringum í Grindavík. Það hefur verið gerð skýrsla þar sem beini kostnaðurinn er 350 milljarðar og svo má reikna ríkissjóði annað eins í slæmri afkomu. Þetta er eitthvað sem við þurfum að ræða af miklu meiri dýpt. Það er stundum eins og margir séu búnir að gleyma hvað við höfum verið að eiga við síðustu misseri og á síðustu árum.