fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir andsvarið. Mig langar að byrja á að nefna með kílómetragjaldið að þó að það hafi ekki heitið kílómetragjald í áætlunum fyrri stjórnvalda þá átti að taka 1,7% af vergri landsframleiðslu af samgöngum í samgöngurnar. Svo var þetta bara óútfært af því að fyrri ríkisstjórn féll frá því að leggja kílómetragjald á með þeim hætti sem boðað var, en engu að síður var gert ráð fyrir þessari tekjuöflun. Þó svo að útfærslan hafi stoppað í þinginu þá var gert ráð fyrir þessari tekjuöflun þannig að það er ekki hægt að skýla sér á bak við þennan málflutning sem hv. þingmaður fór yfir áðan. Ég vil bara nefna það. Og við erum að lækka miðað við það sem var gert ráð fyrir, mér þykir mikilvægt að halda því til haga. Fyrir mér varðandi kílómetragjaldið — mörgum þykir óþolandi að það skuli hækka um 1 kr., ég skil það alveg, það er óþolandi. En við ætlum að láta þetta standa undir vegakerfinu og þegar við erum með kerfi sem er þannig í grunninn að þeir borga sem nota þá verðum við að fara þessa leið. Veit hann um einhverja aðra og sanngjarnari leið til að ná í tekjur af samgöngum? Það væri gott að heyra það hér ef þetta er ekki leiðin. Ég hef alveg heyrt að það eigi að taka gjald af nýjum vegaframkvæmdum og við erum að gera það líka. En miðað við vöxtinn í innviðauppbyggingu þá verðum við auðvitað að geta fjármagnað þetta. Ég skil það eftir eftir hjá þingmanninum.
Mig langar líka að hafna þessari söguskýringu að þessar gjaldahækkanir um áramótin hafi drifið áfram verðbólguna. Ég vil benda hv. þingmanni á að lesa minnisblað frá fjármálaráðuneytinu sem kynnt var þjóðhagsráði í síðustu viku og þar kemur skýrt fram: „Aukning verðbólgu er ekki drifin áfram af opinberum gjöldum. Flugfargjöld skýra helming aukningar frá áramótum.“ Þannig að ég hafna því að vörugjöldin hafi ýtt undir verðbólguna. Ég hvet þingmanninn til að lesa þetta góða minnisblað sem varpaði nýju ljósi, alla vega hvað mig varðar, á það hvernig verðbólgan hefur þróast.