fjárlög 2027.
Frú forseti. Mig langar að spyrja hv. þingmann varðandi hagnaðarhlutdeildina í ferðaþjónustunni allri. Nú var hagnaðurinn 20 milljarðar af íslenskri ferðaþjónustu árið 2024 og það sem er verið að leggja á hana hér eru 10–11 milljarðar, örugglega nær 11 milljörðum ef allt er tekið, í það minnsta. Er ekki farið svolítið bratt í þetta þegar við þekkjum hvernig hagnaðurinn er í greininni? Ferðaþjónustan hefur raunverulega umbreytt ríkisfjármálunum í tekjum síðustu 10–15 ár, virðisaukinn og skattspor greinarinnar. Hversu langt eigum við að ganga á þessa grein og um leið halda því þannig að það sé einhver samkeppnishæfni eftir í henni til rekstrar? Hún virðist einhvern veginn vera orðin svolítið bitbeinið, að það eigi að ráðast á hana þetta árið.