158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:37]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ég vil taka undir með honum. Ég er sammála honum í því að ferðaþjónustan sé alveg gríðarlega mikilvæg og öflug atvinnugrein og bara orðin burðug, enda skapar hún einna mestan gjaldeyri inn í landið. Við eigum að lyfta ferðaþjónustunni upp af því að hún er að skila miklu og ekki síst á landsbyggðinni þar sem hún hefur ýtt undir mikla fjölbreytni í störfum. En ég vil gera athugasemdir við þessa framsetningu: Það er ekki verið að fara að skattleggja arðinn af ferðaþjónustunni. Það á að fara að hækka virðisaukaskatt á baðlón eingöngu þannig að þau verði í sama þrepi og nánast allir aðrir, svo þau njóti ekki skattafsláttar heldur séu á við aðra starfsemi hér í landinu. Mér finnst þetta sérkennileg framsetning hjá hv. þingmanni því að jafnvel þótt ferðaþjónusta sé mikilvæg, af hverju á hún ekki að vera í sama skattþrepi og hinar atvinnugreinarnar? Hver er sanngirnin í því að þú borgir 11% virðisaukaskatt til að fara ofan í baðlón en borgir 24% til að kaupa miða í bíó? (Forseti hringir.) Hver er sanngirnin í því? Ferðaþjónustan er burðug og hún hefur verið að sýna góða arðsemi og ég tel að hún geti borið þetta.