fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Við erum bara að tala um baðlónin hér, svo það sé alveg á hreinu. Við erum bara að tala um baðlón sem eru í neðra þrepi. Það er nú búið að dreifa bandorminum hérna þar sem tekjuráðstafanir líta dagsins ljós og þar er ein samanburðargreining á baðlónum á Norðurlöndunum og þau eru líka í efra þrepi. Þannig að hér er verið að ræða samkeppnishæfni atvinnugreina og bara ágætt að hafa það í huga. Við erum ekki að tala um gistingu. Við erum bara að tala um að hækka baðlónin sem eru lúxusvara, svo það sé sagt, og það ætti því að hafa minni áhrif á almenning. Ég bið hv. þingmann að vera ekki að blanda gistingu inn í þetta því að við erum bara að tala um baðlónin.