fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og það kom að því að við fundum einhvern sem var ánægður með fjárlagafrumvarpið. Því meiri skattar, því glaðari verður hv. þingmaður, eins og frægt er orðið. En ég vildi kannski spyrja hv. þingmann af því að hv. þingmaður hlýtur að fá þessa spurningu. Samfylkingin var kosin út á það að lækka vexti og verðbólgu. Nú hefur það augljóslega ekki gengið. Hvar er planið og hvar er sleggjan? Hvernig svarar hv. þingmaður því fólki sem kaus flokkinn út af þeirri forsendu? Og sömuleiðis líka, virðulegur forseti, þá var það mjög skýrt, það gat ekki verið skýrara, að Samfylkingin lofaði því að hækka ekki skatta. Hverju svarar hv. þingmaður þeim kjósendum sem kusu flokkinn út á þessi loforð?