158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:42]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hann spyr hvernig ég svari þegar ekki hefur gengið nógu vel að ná niður vöxtum og verðbólgu og ég reyni nú bara að vera ærleg. Ég er ekkert ánægð með að þetta hafi ekki gengið nógu vel og það er bara eins og ég nefndi í ræðu minni, ég er bara alls ekki ánægð með að vera hér með 8% stýrivexti og 5,6% verðbólgu, ég er bara alls ekki ánægð með það. En lykillinn að því að ná því niður er að vera hér með hallalaus fjárlög svo við náum hér upp trúverðugleika gagnvart efnahagsstefnunni. Það er númer eitt, tvö og þrjú. Þannig svara ég af því að þetta hefur ekki gengið nógu vel og við eigum auðvitað að vera hreinskilin við okkar kjósendur. Þannig að það hefur bara verið mitt svar. Ég er ekki ánægð. Við verðum að gera betur og ætlum að gera betur. Við vorum kosin til þess að gera betur.