158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:43]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og það var ærlegt. Hv. þingmaður svaraði ekki varðandi skattana því að Samfylkingin lofaði því að hækka ekki skatta. En ég nefni þá líka við hv. þingmann að við settum lög um opinber fjármál. Gríðarlega mikill undirbúningur á bak við það. Þar vorum við að taka upp það verklag sem er í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. Ókei, ég ætla ekkert að fara í það að þessi ríkisstjórn byrjaði á því að brjóta þau lög, látum það liggja milli hluta. Síðan er inni í því fjármálaráð, við erum með færustu sérfræðinga, tvo doktora í hagfræði og einn master, sem hafa komið með leiðbeiningar til stjórnvalda um hvernig þau eiga að haga málum. Það er ekkert farið eftir álitsgerð fjármálaráðs. Fjármálaráð bendir á að það er ekki nóg að vera með einhvern næfurþunnan afgang á fjárlögum meðan menn eru að safna skuldum. Fjármálaráð bendir á að ríkisstjórnin hafi gengið fram með kerfisbreytingar sem gera það að verkum að það þarf að endurskoða stöðugleikaregluna og kallar þetta ósjálfbærni í fjármálum. Fjármálaráð bendir á fleiri þætti sem ekki er tekið tillit til. (Forseti hringir.) Heldur hv. þingmaður að það geti tengst eitthvað; þegar menn fara ekki eftir ábendingum færustu sérfræðinga og verðbólgan lækkar ekki?