fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sína og ekki síst hvað hún var persónuleg. Ég heyri það að við eigum við sama vanda að etja og við ættum kannski bara að fara saman hérna niður í kjallara og reyna að eiga við okkar mál. En ég hef nú farið nógu oft af stað í átök til að vita að maður verður að setja sér raunhæft markmið og setja sér einhverjar vörður. Það er það sem við erum að gera með efnahagsmálin.
Ég skil alveg hvaðan hv. þingmaður er að koma varðandi hallalaus fjárlög, sama hvað það kostar. Það má ekki kosta of mikið. Hann talar hér um 30 milljarða. Þá langar mig að velta því upp við þingmanninn hvort hann hafi velt því fyrir sér hvað það muni skipta alla landsmenn gríðarlega miklu máli að ná vaxtastiginu niður og verðbólgunni, hvort hann telji það ekki vera meiri ávinning fyrir land og þjóð að ná vöxtum og verðbólgu niður heldur en að sleppa þessum nýju tekjuráðstöfunum sem við erum að eiga við eins og í baðlónunum. Við erum ekki að tala hér um gistinguna, við erum bara að tala um baðlónin. Telur hann það ekki vera skynsamlegri leið að fara í svona sértæka tekjuöflun heldur en að eiga við alla landsmenn? Mig langar að biðja hann að velta því fyrir sér hvort ávinningurinn sé ekki meiri fyrir landsmenn alla að taka þetta svolítið stíft. Það er, eins og hann þekkir í öllum erfiðum átökum, erfitt meðan á því stendur en maður uppsker svo sannarlega. Er ekki betra að taka þetta bara á sig núna og horfa þá til framtíðar og við getum þá létt undir með fyrirtækjum og heimilum þessa lands?