158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:17]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sitt seinna andsvar en þrátt fyrir mikla einbeitingu náði ég ekki að hlusta mér til gagns þannig að ég fyndi spurningu í andsvarinu. Mig langar því að taka þennan þráð upp aftur. Ég tek undir að auðvitað eigum við að reyna að nýta hlutina vel, almennt í öllu, og hafa öll mál eins skilvirk og hægt er. Ég vil bara hvetja hv. þingmann aftur til að fara inn í sitt bakland í ríkisstjórninni og ræða þetta þar. Hæg eru heimatökin þegar menn eru í meiri hluta á þingi. Þá er hægt að gera það. Það er margoft talað um að ríkisstjórnin sé samhent, menn syngi í sömu tóntegund o.s.frv. Það ætti því að vera auðvelt mál fyrir hv. þingmann að fara áfram með þetta. En þar sem engin spurning var í seinna andsvari hv. þingmanns þá læt ég máli mínu lokið hér, þó að tíminn sé ekki liðinn.