158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:33]
Horfa

Sandra Sigurðardóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Kærar þakkir fyrir þetta. Mig langar að taka undir. Það hefur tekist vel til í borginni núna og þar eru gríðarlega miklar aðgerðir sem er búið að fara í og stendur meira til. Það sem ég held og tel hér með þessu er að það er auðvitað stóru gati að loka hér og uppsafnaður halli sem er bara erfitt verkefni. Vissulega hefði ég viljað hafa meiri afgang, það gefur augaleið. Það er auðvitað, eins og ég kom inn á áðan, verið að skera niður um 2 kr. með því að sækja tekjur upp á 1 kr. á móti. Ég sé bara ekki með hvaða hætti við gætum gengið lengra. Ég ætla því að varpa þeirri spurningu yfir á hv. þingmann: Með hvaða hætti ættum við að ganga lengra, fara í fleiri aðgerðir og hvaða aðgerðir? Hv. þingmaður nefnir aðgerðirnar í Reykjavíkurborg og ég get ekki betur séð en við séum bara í mjög svipuðum pakka hér, sem við erum að leggja til í þessum fjárlögum. En betur má ef duga skal, það er svolítið þannig, og ég hlakka líka mikið til að sjá hvernig frumvarpið fer í nefndinni og hvaða breytingar verða. Það er ekki mikið svigrúm, líkt og hv. þingmaður nefnir, en ég bind vonir við að þetta verði skoðað í meðförum þingsins og hvort einhvers staðar sé hægt að skera meira niður. Mig langar að heyra hvað hv. þingmaður leggur til í þeim efnum.