fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég hjó eftir því að það voru ekki svör við þeim spurningum sem ég kom með hér í mínu fyrra andsvari og ég vænti þess að hv. þingmaður komi aðeins betur inn á það. Hvaða aðgerðir? Við erum auðvitað að tala um það að stærsta og mikilvægasta búbótin fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu eru minni verðbólga og lægri vextir, við erum sammála þar. Við eigum auðvitað ekki að sætta okkur við óbreytt ástand, þvert á móti. Það sem er núna og liggur fyrir er að ná hallalausum fjárlögum því það er stöðugleikinn sem við þurfum og við þurfum þennan aga. Ég er alveg sammála, ég hefði alveg viljað sjá meiri afgang. Ég held að við getum alveg verið sammála um það og ég hlakka til að fylgjast með fjárlögunum í meðförum þingsins, hvernig þau taka breytingum og í hvaða átt. Það eru allir sammála um það að helsta aðgerð sem ríkið getur gripið til er að ná hallalausum fjárlögum og vera réttum megin við núllið; eins og þingmaður kom inn á áðan þá er uppsafnaður halli búinn að vera mikill.
Ég ætla aðeins aftur að fara yfir flotta línuritið mitt sem ég er með hér þar sem við erum að tala um skatttekjur sem hlutfall af vergri landsframleiðslu, svo ég ítreki það, og við erum núna með 23,9%. Ég get talið upp hérna 28,2% árið 2014, 29,2% árið 2015, 27,7% árið 2016, við erum í 23,7% árið 2017, við erum árið 2018 í 24,2%, árið 2019 í 24,4% og ég ætla að sleppa Covid-árum og eldsumbrotum á Reykjanesinu. Það að þetta séu einhver tímamót í skattinnheimtu ríkisins er bull og þvæla. Þessar tölur sýna það bara. Aftur, við erum að skera niður í 2 kr. í kerfinu á móti 1 kr. Spurningin mín var: Meiri aðgerðir, hvaða aðgerðir? Hvernig mun þingmaðurinn leggja til að breytingarnar verði í meðförum þingsins?