158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:14]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Söndru Sigurðardóttur fyrir hennar seinni spurningu. Það er ágætt að taka það fram að á árunum 2013–2023 þá lækkuðu þær ríkisstjórnir skatta um 313 milljarða, m.a. með því að lækka virðisaukaskattinn og fleiri skatta. Þetta er ótrúleg hugsunarvilla með baðskattinn og skatta á ferðamenn. Ef við skattleggjum ferðamennina of mikið þá hætta þeir að koma. Það er allra tap. Ég vil benda á, af því að hv. þingmaður talar hér um Liz Truss, ágætan forseta Argentínu, sem er að skera mikið niður og koma Argentínu á réttan kjöl aftur, Javier Milei.

Ég velti því líka fyrir mér og það væri gaman að heyra í hv. þingmanni: Þurfum við virkilega í dag 10 milljarða kr. opinbert batterí, ríkisútvarp, sem spilar dægurtónlist og er á TikTok. Opinberir starfsmenn á kostnað skattgreiðenda á TikTok og búa til hlaðvörp og spila dægurlög — þarf það virkilega árið 2026? (Forseti hringir.) Það eru 10 milljarðar, hv. þingmaður, og við getum kannski sameinast um að spara okkur þá.