158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:23]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka þingmanninum ræðuna. Ég saknaði þess örlítið að hann sæi ekkert jákvætt í því núna þegar verið er að leggja fram fyrstu hallalausu fjárlögin frá 2019. En látum það vera. Mér finnst ýmis hraustleikamerki í fjárlögunum varðandi viðbætur í innviðafjárfestingar, heilbrigðismál og fleira. En þetta er auðvitað umtalsvert aðhald og það er alveg rétt. Ég get síðan alveg tengt við áhyggjur, ef ég skildi það rétt, af krónutöluhækkunum og öðru slíku og ég hef nefnt hér fyrr í umræðunni að mér finnst ekkert ólíklegt að það komi til tals í tengslum við kjaraviðræður og þau samtöl sem verða við aðila vinnumarkaðarins núna á næstu dögum og vikum. Ég upplifi hins vegar alls ekki að sveitarfélögin, aldrei þessu vant, séu á bremsunni heldur var Reykjavíkurborg þvert á móti að hækka matarskammta til gamla fólksins um 70%, eða var það 75%, og síðast í gær boðaði borgarstjóri stórfelldar hækkanir á gjaldskrám í haust. Ég ætla nú bara að biðla til þingmannsins og spyrja, ef þetta verður að umtalsefni næstu daga og vikna, hvort hann treysti sér til að fullyrða það fullum fetum að flokksfélagar hans í meiri hlutum sem þeir eru víða — einhverjir gætu sagt því miður, en hann sem betur fer — muni hafa hemil á gjaldskrárhækkunum og fylgja þá á því fordæmi, ef fordæmi verður sett, sem verður í fjárlögum því að ég held að þetta sé alveg rétt, þetta getur skipt máli.