fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég get að mörgu leyti tekið undir með hv. þingmanni að það hvílir mikil ábyrgð á þingmönnum úr stjórnarmeirihlutanum úr þessum kjördæmum landsbyggðarinnar, Norðvestur-, Norðaustur- og Suðurkjördæmi. En spurður að því hér, frú forseti, hvort það sé okkar eina von þá vil ég svara því þannig, hv. þingmaður, að ég vona svo sannarlega að það sé ekki okkar eina von því reynslan af fjárlagaumræðunni í desember síðastliðnum sýndi fram á að sú von er ekki sterk og ég sé engin teikn á lofti núna, það sem af er þessari 1. umræðu um fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027, að sú vonarglæta sé að glæðast. Miklu frekar finnst mér jafnvel, og ég hef hlustað hér í dag á þingmenn meiri hlutans úr Suðurkjördæmi og úr Norðvesturkjördæmi til að mynda, að það sé allt gert sem hægt er til að reyna að verja það hvernig gengið er að landsbyggðinni, hvort heldur sem er fyrirtækjunum eða fólkinu og heimilunum. Þannig að sú von, hv. þm. Jens Garðar Helgason, er því miður veik, hún er veik. Ég bind nánast meiri vonir við að þessi ríkisstjórn hreinlega haldi ekki velli þannig að við getum farið að vinda ofan af þessu þannig að það sé hægt að fara að laga aðeins til og þá meina ég að laga til í rekstri ríkisins en ekki að sækja meira til fólksins í landinu.