158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[16:54]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og mér finnst umræðan miklu skemmtilegri á þessu plani þar sem við erum að skiptast á skoðunum um það hvernig við myndum leysa þetta verkefni af því að ég held að við getum öll verið sammála um að það er ekki einfalt verk að reka ríkissjóð og ná fram langtímastöðugleika. Ef við skoðum hagsögu okkar Íslendinga þá höfum við samtals einhvers konar tíu ára stöðugleikatímabil af sirka 100. Við höfum reynt að ná utan um veruleikann með ýmsu móti en ég held að besta kjarabótin sem við getum sent til íslenskra heimila og fyrirtækja sé stöðugleiki, fyrirsjáanleiki, að draga úr vöxtum og verðbólgu og ná hér utan um stöðuna til lengri tíma. Varðandi hvað við erum að gera þá er það alveg klárlega þannig að heildarhækkun skatta, það er alveg rétt, er 34 milljarðar með raunhækkunum á skattstofni, t.d. launahækkunum og öðru, en þegar þú ert að tala um nýja gjaldtöku eru það 22 milljarðar, tveir á móti einum, þannig að krónutöluhækkanir eru sem sagt ekki teknar með nýjum gjöldum.

En mig langar þá í mínu síðara andsvari aðeins að víkja aftur að hugmyndinni um hvar maður myndi taka peningana vegna þess að hv. þingmaður fór hér yfir alls konar gjöld sem hann myndi afleggja. Þá myndi koma reikningur hinum megin: Hvað er það nákvæmlega sem hv. þingmaður myndi leggja til að væri dregið úr í ríkisrekstrinum? Hvað nákvæmlega? Eru einhverjar stofnanir sem hægt er að sameina? Já, við erum að gera það, svo sannarlega. Við erum búin að vera að sameina stofnanir. Til að mynda erum við búin að sameina öll heilbrigðiseftirlitin, sýslumennina, það eru áform um lögregluembættin o.s.frv. Það er verið að hagræða. Það er verið að fækka stöðugildum ríkisins um 200. En þetta eru líka allt saman sársaukafullar aðgerðir. Þannig að spurningin er: Hvernig myndi hv. þingmaður hagræða?