158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[18:02]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Það er með ánægju að við fjöllum hér í dag um fjárlagafrumvarp sem færir okkur á umtalsvert betri stað fyrir íslenskt efnahagslíf. Nú höfum við horft upp á hallarekstur í að verða um áratug sem hófst árið 2019 og hefur orðið til þess að ríkið hefur safnað upp um 800 milljarða kr. halla sem hefur gert það að verkum að þrátt fyrir að við séum að fara úr mínus í eilítinn plús á þessu ári þá mun ríkisstjórnin áfram þurfa að eiga við það verkefni að fjármagna þessar skuldir. Þegar ég kom fyrst inn í þingið á síðasta kjörtímabili var mikil áhersla lögð á að ná frumjöfnuði. Fyrrverandi fjármálaráðherra lagði mikla áherslu á að jafnvægi myndi nást í ríkisrekstrinum að frátöldum vaxtagjöldum. Nú er frumjöfnuðurinn um 100 milljarðar í plús. Við erum hins vegar komin á þann stað núna að hallalaus fjárlög upp á 5 milljarða kr. er mikið afrek. Ég hef hins vegar heyrt talað um að staða skulda, sem hefur hækkað á undanförnum árum, geri það að verkum að lánsfjárjöfnuður sé enn neikvæður og það er bara verkefni sem við erum að eiga við næstu árin. Þetta eru skuldirnar sem voru skildar eftir eftir síðasta kjörtímabil og þess vegna skiptir svo gríðarlega miklu máli að við leggjum á það áherslu næstu árin og mánuðina að viðhalda þessari stöðu. Mig langar líka út frá skuldastöðunni að vekja athygli á því að það er vissulega þannig að skuldir eru í kringum 37 eða 38% af landsframleiðslu en þeir sem taka vel eftir í bókhaldinu sjá að þar hafa bæst við áhrif á A1-hluta ríkissjóðs vegna uppgjörs okkar á ÍL-sjóði sem til lengri tíma og heilt yfir er að styrkja þjóðarbúið og er að styrkja heildarskuldastöðu hins opinbera þannig að skuldastaðan er í raun mun betri en virðist vera.

Ég ætla ekkert að draga fjöður yfir það að það er ekki auðvelt að skila hallalausum fjárlögum eftir minna en tveggja ára kjörtímabil, það eru um 20 mánuðir síðan þessi ríkisstjórn tók við. Það er ýmislegt sem kemur upp á þegar þú ferð að opna bókhaldið. Það eru ýmsir veikleikar sem koma fram sem tekur tíma að átta sig á, til að mynda veikleikar í ákveðnum aga þegar kemur að tilfærslukerfum. Og þetta er eitthvað sem er sérstaklega verið að skoða núna í fjármálaráðuneytinu. Ég má til með að nefna að þrátt fyrir að mikill árangur hafi náðst í heilbrigðiskerfinu á undanförnu ári — samanber nýja frétt frá Landspítala um stöðuna á bráðamóttökunni, um að nú séu það einungis 50 sjúklingar sem þurfi á hjúkrun eða sjúkrahúsinnlögn að halda — þá er það þannig að kjarasamningar sem voru gerðir á síðasta kjörtímabili, í raun bara tveimur til þremur dögum fyrir kosningar, voru það vanfjármagnaðir við sérfræðilækna og við lækna á heilbrigðisstofnunum að það hefur skilið eftir sig stórt gat í rekstri þessara heilbrigðisstofnana. Þetta er eitt af þeim verkefnum sem við höfum tekið í fangið og höfum verið að finna út úr. En ég treysti engum betur en hæstv. heilbrigðisráðherra til að sinna þessu.

Þrátt fyrir að við séum komin á þennan stað núna, að ná úr mínus yfir í plús, sem verður ærið verkefni að standa við, þá er samt ýmislegt sem hefur gerst, ekki bara á síðustu tveimur árum sem við höfum verið að vinna að þessu heldur líka nú á næsta ári. Þá erum við að stefna í að viðhalda þessu stóraukna fjárfestingarstigi í samgöngum. Við fórum til að mynda úr 12 eða 13 milljörðum í hátt í 17 milljarða í viðhald vega á einu ári. Strax á fyrsta árinu okkar bættum við 3 milljörðum við og við erum að viðhalda þessu núna á þessu ári. Þetta skiptir alveg gríðarlega miklu máli. Við erum líka búin að klára stofnun á innviðafélagi sem mun stórauka slagkraft okkar þegar kemur að samgöngum og þetta bætist auðvitað við. Svo má ég til með að nefna að á þessu ári munum við sjá greiðslur almannatrygginga hækka um 7,3% út af nýrri lagasetningu sem kláraðist hér í vor þegar við ákváðum að uppfylla kosningaloforð þessara ríkisstjórnarflokka um að lífeyrir fylgi launum. Ef við hefðum ekki verið með þá bindingu frá því í vor væri hækkunin um 4%. Þarna er ég t.d. búin að nefna tvo mjög mikilvæga málaflokka þar sem við erum sannarlega að standa við gefin loforð en við erum líka að passa upp á það að halda rekstrinum réttum megin við núllið. Eins og ég segi, þegar þú ert kominn með stabba af skuldum eins og við erum að erfa þá ertu að borga um 150–160 milljarða af vaxtagjöldum á ári. Við þurfum að sinna því þannig að verkefnin eru ærin.