fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Það er göfugt að stefna að hallalausum fjárlögum og við Sjálfstæðismenn styðjum það markmið. En það skiptir öllu máli hvernig því er náð og hver borgar reikninginn. Í þessu frumvarpi nema skatta- og gjaldahækkanir um 34 milljörðum kr. Ríkisstjórnin réttlætir tekjuöflunina með því að þau sem hafa mesta burði eigi að leggja sitt af mörkum. En þegar við lesum frumvarpið kemur í ljós að reikningurinn fer líka beint til venjulegs fólks í landinu. Tekjuskattur einstaklinga á að verða rúmum 3 milljörðum kr. hærri en hann yrði í óbreyttu kerfi. Það á að breyta reglunum um hækkun persónuafsláttar og skattþrepa þannig að fólk greiði meira en ella. Skattprósentan þarf ekkert að hækka til að ríkið taki meira til sín. Í greinargerðinni er þetta m.a. rökstutt með því að skattbyrði hafi farið lækkandi án þess að það hafi verið ætlunin. Ég tel það jákvætt þegar fólk fær að halda meiru eftir af eigin tekjum, af sínu sjálfsaflafé, en ríkisstjórnin virðist líta á það sem vandamál sem þurfi að leiðrétta. Við eigum að leysa efnahagsverkefnin sjálf. Það krefst þess að ríkisstjórnin fari betur með fjármuni og treysti fólki og fyrirtækjum til að skapa verðmæti. Þessari ábyrgð verður ekki sinnt með sífellt meiri skattheimtu. Ég vil því spyrja: Hvers vegna telur forsætisráðherra rétt að taka meira af launum fólks sem hún var búin að lofa að létta byrðunum af?