fjárlög 2027.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þetta er sannarlega áhugaverð staða sem við finnum okkur í. Þegar þessi ríkisstjórn hóf störf vorum við að koma út úr sjö eða átta ára tímabili þar sem hagvöxtur í íslensku hagkerfi var 0% á mann. Á sama tíma var vissulega kaupmáttaraukning og því ber að þakka ötulli vinnu verkalýðshreyfingarinnar. Það hefur reyndar líka verið kaupmáttaraukning á fyrstu tveimur árum þessarar ríkisstjórnar. Þetta hefur gert það að verkum að ríkið hefur að hluta til verið að taka velferð og útgjöld og augljóslega laun að láni. Þegar farið var í breytingar á þessum framleiðniviðmiðum — þ.e. þau fest í sessi vegna þess að það var ekki þannig áður að þetta væri í lögum með þessum hætti. Fjármálaráðuneytið og Alþingi í kjölfarið — þetta var bara samþykkt í öðrum hópi, þetta var ekki lagasetning af þessu tagi. Þá var tekin sú ákvörðun að þetta ætti að fylgja vísitölu verðlags og framleiðni og að framleiðniaukning yrði um 1% í hagkerfinu. Hér varð engin 1% framleiðniaukning. Það var 0% hagvöxtur á mann í átta ár. Það var engin verðmætasköpun á mann hvað þetta varðar þegar kemur að kökunni. Þetta hefur gert það að verkum að það var eftirgjöf af tekjum og auðvitað get ég alveg tekið undir það að það vill enginn fara í óþarfa innheimtu á sköttum. Við erum hins vegar að horfast í augu við það að hér var ríkisstjórn sem skilaði 850 milljarða uppsöfnuðum skuldum og einhvern veginn þarf að loka því gati. Af 80 milljarða aðhaldsaðgerðum eru um 44 milljarðar á útgjaldahliðinni. Þetta eru mestu útgjaldaráðstafanir sem hafa sést í 10–15 ár. Vissulega er það rétt að við förum þá leið að leiðrétta þetta, að þessi framleiðni hefur ekki staðið undir tekjuskattsmörkunum, en vonandi sjáum við fram á breytta tíma með nýrri atvinnustefnu stjórnvalda.