fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að hefja þennan þingvetur og verða ljóst að lítið hefur breyst frá síðasta þingvetri hvað það varðar að hér svara ráðherrar aldrei þeim spurningum sem til þeirra er beint. En við skulum þá skoða nánar aðhaldið sem ríkisstjórnin boðar og athuga hvort forsætisráðherra svari því sem spurt er um. Af 44 milljörðum í útgjaldaráðstöfunum eru tæpir 26 milljarðar á fjárfestingarhlið. Frumvarpið segir að talsverður hluti ráðstafananna felist í breyttri tímasetningu fjárveitinga og geti kallað á auknar heimildir síðar. Það getur verið skynsamlegt að nýta ónýttar fjárheimildir en þá hefur heildarkostnaður verkefnisins ekki endilega lækkað. Við styðjum sameiningu stofnana og betri opinber innkaup. Þar þarf að ná varanlegum árangri sem dregur úr þörfinni fyrir nýjar álögur. En ef hluta kostnaðarins er aðeins frestað, hvernig ætlar ríkisstjórnin þá að standa undir honum síðar? Með enn frekari skattahækkunum?