fjárlög 2027.
Forseti. Það er vissulega rétt að inni í sértækum útgjaldaráðstöfunum eru að hluta til uppsafnaðar fjárfestingarheimildir. Þetta eru heimildir sem hafa ekki gengið út á síðustu árum. Þarna má hins vegar líka finna breyttar áherslur þegar kemur að endurhæfingu og það er verið að passa betur upp á greiðslur þar. Hér eru líka sparnaðarútgjöld sem snúa að fækkun stöðugilda hjá ríkinu og almennu aðhaldi. Það eru líka hér útfærslur sem snúa að opinberum innkaupum. Ég vil líka nefna í þessu samhengi að við byrjuðum á okkur sjálfum. Þetta er ekki vegferð sem er að hefjast í dag. Við byrjuðum á því að fækka ráðuneytum sem var fjölgað í tíð og tíma síðustu ríkisstjórnar. Við fórum líka í þá vegferð að fara í frekari sameiningar og stefnum að 15% sameiningu stofnana á kjörtímabilinu og erum langt komin með það. Reyndar hafa þær sameiningar margar hverjar mætt andstöðu í þessum sal. Ég ætla ekkert að draga fjöður yfir það að það er áskorun að koma útgjöldum í 30% af landsframleiðslu eftir mikla ágjöf síðustu ára og mikla skuldasöfnun og hallarekstur (Forseti hringir.) en það er að takast. Við munum síðan halda áfram með fjárfestingar eins og þörf er á en eðlilegt er að heimildir sem ganga ekki út rati ekki inn í fjárlagafrumvarpið.