158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[18:14]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir hennar ræðu sem var upplýsandi og góð áheyrnar. Úr fjárlagafrumvarpinu 2027, sem við ræðum í dag, má lesa að ríkisstjórnin sé að setja fram þrjár pólitískar meginlínur: um ábyrgð í ríkisfjármálum, þar sem viðvarandi hallarekstri er snúið í afgang; um að vörður sé staðinn um grunnþjónustu með styrkingu lykilstoða hennar, sem eru vegakerfið, öryggismál, heilbrigðiskerfið, málefni barna og aldraðra og menntakerfið, og um að tekjuöflun sé sanngjarnari og lendi þar sem borð er fyrir báru. Það þarf ekki að taka það fram hér að hæstv. forsætisráðherra er hagfræðingur að mennt en einmitt í því ljósi langar mig að biðja hæstv. ráðherra að fara yfir hvers vegna hallalaus fjárlög eru mikilvæg til þess að ná þeim árangri sem að er stefnt, þ.e. svo að verðbólga minnki og vextir verði lækkaðir í kjölfarið.