158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[18:15]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég þakka þingmanni fyrir spurninguna. Hún er mikilvæg í ljósi þess að mjög eðlilega er erfitt að skila hallalausum fjárlögum. Ég sé alveg af hverju það hefur ekki gengið á síðustu árum. Ég hef samúð með því að hér gekk yfir heimsfaraldur og jarðhræringar en allt of lengi lifðu ákveðin útgjöld og útgjaldaheimildir í kerfinu. Það er erfitt að snúa af þessari braut, sérstaklega þegar það er mjög lítill vilji til að snúa við tekjuhlið og það er lítill vilji til þess að útgjaldahliðin gefi eftir. En þetta hefur, eins og ég kom hér áður að og fleiri hafa gert í dag, gert það að verkum að á undanförnum árum hefur safnast hér upp gríðarlegt magn af skuldum. Þegar síðasta ríkisstjórn hóf sinn feril voru vaxtagreiðslur í kringum 50 milljarðar á ári. Í dag eru þær í kringum 168 milljarðar. Og auðvitað er tvennt sem hefur gerst í því samhengi. Skuldir hafa aukist og vaxtastig hefur vissulega hækkað líka. Ég veit alveg hvernig verðbólguþróun hefur verið á þessu ári. Ég geri mér alveg grein fyrir vilja minni hlutans til þess að klína því að öllu leyti á verk þessarar ríkisstjórnar. Við tökum auðvitað ábyrgð á stöðu efnahagsmála og ég ætla hvergi að hvílast fyrr en við erum búin að ná verðbólgu niður í ásættanlegt horf. En ég vek þó athygli á töflu og greiningu sem er í fjárlögunum sem sýnir skiptingu verðbólgunnar það sem af er ári. Við sjáum glögglega á þessu eina og hálfa prósenti sem bættist við á árinu, að um 70% af því er vegna olíuverðshækkana. Það eru mjög takmörkuð jákvæð áhrif af opinberum hækkunum en það breytir því ekki að við þurfum að ráðast í þessar aðgerðir vegna þess að annars erum við að greiða tugi milljarða króna á ári í vaxtagjöld sem annars myndu renna inn í velferðina. Og á sama tíma: Ríkissjóður sem er rekinn í halla í rúmlega 5% verðbólgu og 8% vöxtum gerir ekkert annað en að skapa þenslu og það er óábyrgt.