fjárlög 2027.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir hennar svör við mínu andsvari. Ég vík mér þá að annarri spurningu. Samkvæmt greiningu þjóðhagsráðs hefur kaupmáttur aukist frá árinu 2024 hjá öllum tekjuhópum, í öllum tekjutíundum og óháð stöðu á húsnæðismarkaði. Þessi staðreynd þýðir að þrátt fyrir verðbólgu, vaxtastig og erfiða stöðu ríkisfjármála hefur tekist að verja og jafnvel auka kaupmátt almennings. Mig langar að biðja hæstv. forsætisráðherra til að fara yfir það hve mikið hlutur tekna ríkisins er að aukast sem hlutfall af vergri landsframleiðslu ef miðað er við forsendur fjárlagafrumvarpsins.