fjárlög 2027.
Forseti. Ég þakka fyrir spurninguna og ágæt inngangsorð. Ég held að það segi líka allt sem segja þarf um þróun tekna. Eðli málsins samkvæmt, í umhverfi þar sem laun og kaupmáttur vaxa, aukast umsvif ríkissjóðs. Þess vegna skiptir svo gríðarlega miklu máli þegar við erum að tala um tekjur og útgjöld að við skoðum hvort tveggja sem hlutfall af landsframleiðslu. Ég held að flestir í þessum sal viti, a.m.k. þeir sem setið hafa í fjárlaganefnd, að oftast er það þannig að stærsti viðbótarútgjaldaliður hjá ríkissjóði eru laun og verðlagsbætur. Að sama skapi er tekjuhliðin að aukast í þessu samhengi í kringum hálft prósent af landsframleiðslu. En það er m.a. að falla til vegna þess að það eru aukin umsvif í hagkerfinu. Ég geri ekki lítið úr því að við erum með sérstakar ráðstafanir sem snúa að bönkunum, sem snúa að baðlónum sem hafa verið með undanþágu, ólíkt annarri afþreyingu í landinu, og síðan líka að aðgengi að náttúruperlum landsins. En þetta eru þættir sem oft hefur verið rætt um hér á Íslandi og ég hygg að góð umræða verði um þá í vetur.