158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[18:19]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir framsöguna um sína sýn á þessi fjárlög. Þetta er auðvitað yfirgripsmikil umræða sem fer fram í 1. umræðu þannig að mig langaði kannski ekki að dvelja sérstaklega við þær tölur sem er verið að benda hér á og þjarka um, verðbólgutölurnar og allt í þeim efnum, heldur miklu frekar spyrja hæstv. forsætisráðherra um hennar sýn á helstu áskoranir í breiðum og stórum dráttum þegar kemur að ríkisfjármálunum. Til að varpa ljósi á það sem ég er að velta fyrir mér hef ég t.d. sjálf miklar áhyggjur af þróun bótakerfisins, almannatryggingakerfisins í heild, bæði fjölgun bótaþega sem hefur verið og auknum fjárhæðum; í þessu fjárlagafrumvarpi erum við að tala um aukningu í greiðslu bóta svo um munar. Ég veit að margir berja sér á brjóst og telja það jákvæða þróun að verið sé að hækka bætur og annað. Að mínu mati er þetta mikið áhyggjuefni og ekki bara fyrir ríkisfjármálin heldur allt efnahagslífið, vinnumarkaðinn og þróun hans til lengri tíma. Það er nefnilega mjög erfitt að vinda ofan af umfangsmiklu almannatryggingakerfi, fjölgun bótaþega, þegar það er einu sinni komið á, sérstaklega í ljósi nýlegra breytinga sem gerðar voru á kerfinu sem einhvern veginn tryggja það að menn sem einu sinni eru komnir á bætur geti nánast verið þar út ævina. Mig langar því að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort hún deili þessum áhyggjum með mér og ef ekki þá spyr ég kannski hverjar séu helstu áskoranirnar sem hún getur séð til næstu tíu ára í efnahagslífi okkar Íslendinga.