158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[18:24]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég var öðrum þræði líka að velta því fyrir mér hvort hæstv. forsætisráðherra hefði einhverja sýn á það hvernig best væri að koma í veg fyrir eða stoppa þá blæðingu sem augljóslega er í þessum kerfum hjá okkur. Samkvæmt nýjustu tölum árið 2026 erum við að tala um 77.500 manns, við erum komin upp í þann fjölda, en inni í því eru ellilífeyrisþegar sem eru að þiggja bætur úr almannatryggingakerfinu. Það er auðvitað von okkar allra að þeim fari fækkandi með öflugum lífeyrissjóðum og þegar yngri kynslóðir fara að taka ellilífeyri úr sínum sjóðum. En eftir standa 35.000 manns sem eru að þiggja örorku- og endurhæfingarlífeyri. Hefur forsætisráðherra einhverja sýn á það að stöðva þessa blæðingu? Ég spyr af því að ekki má greina neina ætlan eða áform um það í fjárlagafrumvarpinu að skoða þetta kerfi (Forseti hringir.) með tilliti til þess hvernig hægt er að draga úr útgjöldum í þessum málaflokki.